Tónlist

Þrjú lög á Degi íslenskrar tónlistar

Lagið Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar verður flutt á morgun.
Lagið Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar verður flutt á morgun. VísirAnton

Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur á föstudag. Af því tilefni munu helstu útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11.15.



Íslendingar geta því sameinast við viðtækin og sungið lög til heiðurs íslenskri tónlist. Markmiðið er að fá sem flesta til að kveikja á útvarpinu kl. 11.15 og syngja með. Tilvalið er að safnast saman á sal þar sem slíkur er til afnota til að allir geti sameinast í söng.



Lögin sem urðu fyrir valinu í ár eru lag Sigfúsar Halldórssonar, Litla flugan, við texta Sigurðar Elíassonar, Reyndu aftur, lag og texti eftir Magnús Eiríksson og Þannig týnist tíminn, lag og texti eftir Bjartmar Guðlaugsson. Textar og gítargrip laganna eru aðgengileg á Facebook-síðu Syngjum saman!.



Þátttakendur eru hvattir til þess að taka sönginn sinn upp á myndband og senda á Facebook-síðu Syngjum saman! í kjölfar viðburðarins.



Dagur íslenskrar tónlistar og verkefnið Syngjum saman! eru haldin fyrir tilstuðlan hagsmunasamtaka tónlistarinnar undir formerkjum Samtóns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.