Menning

Flottar konur með skrautlegt sálarlíf

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Hlín Agnarsdóttir leikstjóri leiðbeinir hluta leikkvennanna á æfingu í Iðnó.
Hlín Agnarsdóttir leikstjóri leiðbeinir hluta leikkvennanna á æfingu í Iðnó. Mynd: Salvör Aradóttir
Þetta er ljóðagjörningur sem þýðir það að við ætlum ekki bara að lesa ljóðin og flytja þau heldur aðeins leika þau líka,“ segir Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri ljóðagjörningsins Sál mín var dvergur á dansstað í gær, sem unninn er upp úr ljóðheimi Steinunnar Sigurðardóttur og verður sýndur í Iðnó í kvöld. „Það er svo mikið leikhús og samtal í ljóðum Steinunnar sem við nýtum okkur í sýningunni,“ bætir Hlín við.



Þátttakendur í gjörningnum eru listakonur úr hópnum Leikhúslistakonur 50 plús sem starfað hefur í Iðnó síðan í september. „Þetta eru listakonur, leikkonur og tónlistarkonur og við göngum dálítið langt í því að nýta okkur leikhúsið til þess að koma þessum texta á framfæri,“ útskýrir Hlín. „Ljóð og leikhús standa svo nálægt hvort öðru þannig að það er mjög gaman að vinna með það.“



Það er sannkallað stórskotalið listakvenna sem að sýningunni stendur, en alls koma fram ellefu konur í sýningunni. Söngkonan Jóhanna V. Þórhallsdóttir hefur samið tónlist við nokkur ljóðanna sem hún mun syngja, Helga Björnsson hannar útlit og umgjörð og Hlín lofar glæsilegu sjóvi. „Þetta eru tíu flottar konur á síðkjólum,“ segir hún. „Þær eru eins og konurnar hennar Steinunnar sem eru flottar konur með skrautlegt sálarlíf, sem kemur ekki síst fram í ljóðunum.“



Steinunn hlaut á dögunum Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar en það vissu listakonurnar að sjálfsögðu ekki þegar skipulagning gjörningsins hófst. „Ég ákvað þetta strax í haust þegar við komum saman, hópurinn,“ segir Hlín. „Ég hef lengi haft áhuga á að búa til svona gjörning úr ljóðum Steinunnar og raunar langar mig að fara lengra með konseptið og hreinlega búa til alvöru leikhús úr þessum ljóðum. Ég stefni að því ef þetta tekst vel hjá okkur á mánudagskvöldið.“



Dagkráin hefst í Iðnó klukkan 20 í kvöld og stendur í um það bil klukkutíma. „Við byrjum bara með þetta eina skipti en ef það gengur vel þá kannski endurtökum við leikinn síðar,“ segir Hlín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.