Menning

Sungið um ástina og lífið í Austurbæ

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hér eru dömurnar klæddar í samræmi við þema síðustu vortónleika í Hörpu, Perlur og pilsaþytur.
Hér eru dömurnar klæddar í samræmi við þema síðustu vortónleika í Hörpu, Perlur og pilsaþytur. Mynd/úr einkasafni
Ástarsöngvar verða í öndvegi á styrktartónleikum Kvennakórs Kópavogs í Austurbæ á morgun, sunnudag. Uppselt er þegar á sönginn sem hefst klukkan 16 en möguleiki að komast á þann síðari sem byrjar klukkan 20.

Erna Bjarnadóttir, ein kórkvenna, segir reyndar kvennakórinn ekki endilega í aðalhlutverki þótt hann taki mesta plássið á sviðinu. Hann hafi fengið einvalalið tónlistarfólks til að koma fram með sér, eins og Pál Óskar Hjálmtýsson, Ölmu Rut Kristjánsdóttur, Drengjakór íslenska lýðveldisins og snjalla hljóðfæraleikara. Einn undirleikaranna er líka stjórnandi kórsins, John Gear, sem spilar á hljómborð og trompet.

 

„Kórinn er samstilltur hópur eins og vera ber og þetta er í sjöunda skipti sem hann heldur slíka styrktartónleika. Yfirskriftin er Hönd í hönd og að þessu sinni mun allur ágóði renna til Mæðrastyrksnefndar Kópavogs og líknardeildar LSH í Kópavogi.

„Það er mikil eining um þetta verkefni, eins og undanfarin ár,“ segir Erna. „Fjöldi fólk gefur vinnu sína og meira að segja mat, við erum mjög þakklát því öllu.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.