Menning

Hafdís og Gunnlaugur saman í fyrsta sinn

Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Gunnlaugur Björnsson gítarleikari koma fram á tónleikum í Háteigskirkju í kvöld.
Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Gunnlaugur Björnsson gítarleikari koma fram á tónleikum í Háteigskirkju í kvöld. Mynd úr einkasafni
Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Gunnlaugur Björnsson gítarleikari koma fram á tónleikum í Háteigskirkju í kvöld klukkan 20. þetta er í fyrsta sinn sem þau koma fram saman en þau eiga ýmislegt sameiginlegt, bæði luku ung framhaldsprófi frá Tónlistarskóla Kópavogs, hlutu viðurkenningu frá Kópavogsbæ sem framúrskarandi listnemar og stunduðu í framhaldinu tónlistarnám erlendis.



Á efnisskránni í kvöld eru meðal annars C-dúr-sónata J.S. Bach, franskar perlur og Saga tangósins eftir Piazzolla. Að ógleymdu tónverki eftir Gunnlaug sjálfan, Temperamental Suite, en þetta er í fyrsta sinn sem verkið er flutt á Íslandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.