Daglegt líf í skissum prestsins Valgerður Þ. Jónsdóttir skrifar 13. október 2014 10:00 Örn Bárður tekur virkan þátt í teikniklúbbi á netinu. Hann sendir annað slagið inn valdar myndir úr skissubókinni og vatnslitamyndir, sem hann hefur málað um dagana. FRETTABLADID/PJETUR
Sjálfblekungur með svörtu bleki er verkfærið og með honum dregur séra Örn Bárður Jónsson upp lífið eins og það blasir við honum í svarta skissubók. Ekki alltaf og alls staðar, en þó býsna oft. Bókina skilur hann að minnsta kosti sjaldan við sig. Hann dregur hana upp úr skjalatöskunni sinni við ýmis tækifæri, mundar verkfærið hröðum höndum og fangar augnablikið, rétt eins og ljósmyndari. „Ég skissa upp allt mögulegt, hús, landslag, dýr, blóm og manneskjur í mismunandi athöfnum, aðstæðum og umhverfi, hvar sem er og hvenær sem er, heima og heiman,“ segir Örn Bárður, sem vatnslitar myndirnar og skrifar oftast við þær ýmsa minnispunkta, skýringar eða athugasemdir þegar heim er komið. Hversdagslegir hlutir eins og heftari, heyrnartól og hádegisverður fá líka sitt pláss í bókinni svo fátt eitt sé nefnt. Ekkert er of ómerkilegt fyrir skissubókina að því er best verður séð. „Ég byrjaði að skissa svipmyndir úr daglega lífinu fyrir um tveimur árum þegar ég skráði mig á urbansketchers.org sem er teikniklúbbur á netinu fyrir þá sem hafa gaman af að skissa upp myndir á staðnum ef svo má segja. Það þýðir að ætlast er til að klúbbfélagar skissi undirbúningslaust eitthvað sem fyrir augu þeirra ber hvað svo sem það er. Ég rakst á síðuna af tilviljun þegar ég var að vafra um netið fyrir um tveimur árum og skráði mig félaga því mér fannst hún kjörinn vettvangur fyrir þá sem hafa gaman af að teikna. Klúbbfélagar, sem eru frá öllum heimshornum, af öllum stéttum og á öllum aldri, geta sent inn skissur sínar til birtingar. Sjálfur hef ég sett á síðuna og einnig á flickr.com nokkrar valdar skissur og líka stærri vatnslitamyndir sem ég hef verið að mála,“ segir Örn Bárður.Handskrifað „Í Hedrum (áður Heidarheim) „Domkirken på akeren“. Sr. Þórir Jökull flutti hugvekju og Björn sagði frá kirkju og frímúrarastarfi og tengslum. Thor bóndi og sagnfræðingur fræddi. 29. sept. 2014“ skrifaði Örn Bárður.VISIR/PJETURHann á þegar í fórum sínum þrjár nokkuð þykkar skissubækur og er langt kominn með þá fjórðu. Þótt margar skissur hans og vatnslitamyndir séu öllum aðgengilegar á netinu, hefur hann ekki flíkað þeim sérstaklega. Og skissubækurnar geymir hann í skjalatöskunni sinni. Samtals eru í þeim hátt í þrjú hundruð skissur. Séu þær skoðaðar í tímaröð má ráða í hvar hann hefur verið, jafnvel hvað hann hugsaði á því augnablikinu sem hann gerði skissurnar. Handskrifuðu nóturnar eru líka vísbendingar. Spurður hvort hann hafi átt sér listamannsdrauma á árum áður svarar hann játandi. „Sem strákur teiknaði ég og málaði töluvert með vatnslitum og sextán ára fór ég að fikta með olíuliti. Síðan snerti ég ekki á neinu slíku fyrr en um fertugt, fór til dæmis í módelteikningu í Myndlistarskólanum. Pabbi var frístundamálari og dóttir mín er myndlistarmaður svo kannski er þetta eitthvað í genunum.“ Örn Bárður hefur mikinn áhuga á að taka aukinn þátt í starfi teikniklúbbsins, t.d. sækja námskeið og viðburði sem hann standi fyrir víða um heim. „Samfélagið á urbansketchers.org er skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi. Listin lifir góðu lífi á netinu,“ segir hann.Grasrótarsamtök á netinu Urban Sketchers eru grasrótarsamtök, sem rekin eru án hagnaðarvonar. Bækistöðvarnar eru í Washington-fylki á vesturströnd Bandaríkjanna. Markmiðið er að vera vettvangur og samfélag skissara um allan heim, kynna verk þeirra og hvetja þá til dáða. Stofnandi samtakanna er Spánverjinn Gabi Campanario, myndlistarlistarmaður og rithöfundur, sem m.a. er þekktur fyrir pistla sína í Seattle Times.
Menning Mest lesið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Sykursalur orðinn einn vinsælasti veislusalur Reykjavíkur Lífið samstarf Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Lífið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Fleiri fréttir „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira