Menning

Byggingarlistin útgangspunktur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 "Það var mikil framúrstefna hjá Ásmundi að hafa þetta kúlulag á húsinu þegar hann byggði það upp úr 1940,“ segir Yean Fee Quay.
"Það var mikil framúrstefna hjá Ásmundi að hafa þetta kúlulag á húsinu þegar hann byggði það upp úr 1940,“ segir Yean Fee Quay. Fréttablaðið/Valli
 Ásmundarsafn sjálft er hluti af sýningunni sem þar verður opnuð í dag. Yean Fee Quay er sýningarstjóri.

„Ég ákvað að nýta þetta spennandi hús sem útgangspunkt fyrir sýninguna og undirstrika það sem höggmynd. Það var mikil framúrstefna hjá Ásmundi að hafa þetta kúlulag á húsinu þegar hann byggði það upp úr 1940. Það var í raun fyrsta húsið í Reykjavík sem var ekki eins og hin,“ segir Yean Fee Quay, stödd í Ásmundarsafni við Sigtún.





Höfði Verk eftir Huldu Hákon.
Undirbúningur undir samsýninguna A posterori: Hús, höggmynd er þar í fullum gangi. Hún verður opnuð á laugardaginn klukkan 16 og Yean Fee Quay er sýningarstjóri.

Listamennirnir Birgir Snæbjörn Birgisson, Guðjón Ketilsson, Hulda Hákon, Kathy Clark, Kristín Reynisdóttir, Stefán Jónsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir munu eiga verk á sýningunni og auk þess verða litlar útgáfur af nokkrum styttum Ásmundar Sveinssonar úr garðinum.





Ævintýralegt Kathy Clark hefur ekki sýnt hér á landi áður.
Nokkur verk eru þegar komin á sinn stað. Skyldu listamennirnir hafa unnið þau sérstaklega fyrir þessa sýningu?

„Nei, þeir áttu þau fyrir og ég vissi af þeim,“ svarar Yean Fee Quay brosandi og nefnir sem dæmi að Guðjón Ketilsson hafi unnið mikið með hús í sinni list og búið til höggmyndir út frá formum þeirra. Bendir líka á eitt fínlegt verk á stafni neðri salarins eftir Kathy Clark.



Miðrýmið Öll þessi verk eru eftir Stefán Jónsson. Bláa húsið heitir Reiði Rafaels.


„Þetta er í fyrsta sinn sem Kathy sýnir hér á landi,“ segir Yean Fee. „Hún er frá Bandaríkjunum en hefur búið á Íslandi lengi og unnið sín verk í kyrrþey.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.