Menning

Stefnum að ánægjustund í hádeginu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Víbrafónleikarinn Reynir Sigurðsson ætlar að kynna djass fyrir almenningi.
Víbrafónleikarinn Reynir Sigurðsson ætlar að kynna djass fyrir almenningi. Mynd/Úr einkasafni
„Við ætlum að taka hátt í tíu lög, gamla standarda frá 1930 til 1950,“ segir Reynir Sigurðsson víbrafónleikari um efnisvalið á hádegistónleikum í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun, föstudag.

Um nýja tónleikaröð er að ræða sem nefnist Jazz í hádeginu og Reynir ætlar að ríða á vaðið ásamt nokkrum félögum. Hann leiðir kvartett sem skipaður er Hauki Gröndal sem leikur á altsax og klarínett, Gunnari Hilmarssyni á rythmagítar og Leifi Gunnarssyni sem leikur á kontrabassa og er jafnframt listrænn stjórnandi dagskrárinnar.

Leifur orðar það svo að kvartettinn muni „töfra fram tóna frá meisturum gullaldarinnar“.

Eitt laganna sem leikið verður er Memories of you og Reynir á fallega sögu um það.

„Louis Armstrong fór í stúdíó með hljómsveit sína 16. október 1930. Trommuleikarinn í þeirri sveit, Lionel Hampton, sá víbrafón úti í horni í stúdíóinu og gat ekki leynt áhuga sínum á hljóðfærinu og fór að spila þetta lag, Memories of you. Louis Armstrong varð svo hrifinn að hann bað Hampton að nota víbrafóninn í upptökunni og sagan segir að það hafi verið í fyrsta sinn sem víbrafónn var notaður í djassi.“

Hádegistónleikarnir í Gerðubergi standa frá 12.15 til 13. Hver efnisskrá verður flutt tvisvar, frumflutt á föstudegi og endurtekin á sunnudegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.