Menning

Listasagan, vídeó og gagnvirkt verk

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Eitt af verkum Errós.
Eitt af verkum Errós.
Erró fær að láni myndir og myndbrot úr verkum eftir marga þekktustu listamenn sögunnar eins og Picasso og Léger á sýningunni Erró og listasagan sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, á laugardaginn. Enn fremur er Erró með tilvísanir í verk minna þekktra listamanna frá ólíkum skeiðum sögunnar. Þannig má segja að hann skrifi sína eigin útgáfu af listasögunni í verkum sínum. Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.

Við þetta tækifæri mun Erró afhenda viðurkenningu og verðlaunafé úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur til listakonu sem þykir skara fram úr.



Skipbrot úr framtíðinni…

Ásdís Sif Gunnarsdóttir vinnur með gjörninga í vídeóverkum sínum. „Þetta eru upptökur úr verki sem ég sýndi í Hafnarhúsinu 2006, á stórri hópsýningu sem hét Pakkhús postulanna,“ útskýrir hún. „Mitt verk á þeirri sýningu var innsetning sem ég vann meðan á sýningunni stóð. Einnig gerði ég af og til upptökur þar inni og það eru þær sem ég er nú að sýna á átta skjáum. Stundum sjást sýningargestirnir labba í gegn, sem er mjög skemmtilegt.“

Gestir geta breytt verkinu

Verkið Gagnvirkur veggur eftir listamennina Mojoko og Shang Liang er gagnvirkt listaverk samsett úr 200 myndum frá popplist og dægurmenningu Asíu og Vesturlanda. Mojoko gerði grafíkina en Shang Liang sá um forritunina.



Hljóðnemi er tengdur í verkið og geta sýningargestir talað, blístrað eða kallað í hann og myndirnar í verkinu breytast eftir hljómi eða hljóðstyrk.



Sýningarnar þrjár verða opnaðar klukkan 16 en þar að auki býður Listasafn Reykjavíkur til formlegrar afhjúpunar á vegglistaverki Errós á Álftahólum 4-6 klukkan 14. Það gerir borgarstjórinn að viðstöddum listamanninum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.