Menning

Með Gallerí gám á ferð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Mekkín dreymir um að ferðast um allt land með Gallerí gám á útihátíðir næsta sumar.
Mekkín dreymir um að ferðast um allt land með Gallerí gám á útihátíðir næsta sumar.
„Ég ákvað að koma með myndlistina út til fólksins,“ segir Ragnheiður Mekkín Ragnarsdóttir myndlistarmaður sem hefur fengið sér gám sem sýningarsal og fer með hann á útihátíðir. Hann heitir að sjálfsögðu Gallerí gámur.

Hún hefur þegar sýnt á Mærudögum á Húsavík og segir það hafa gengið mjög vel. Nú ætlar hún að vera um helgina á Einni með öllu á Akureyri og aftur á Akureyrarvökunni í lok ágúst.

„Þetta er tilraunaverkefni,“ viðurkennir Ragnheiður Mekkín.

„Ég skemmti mér vel við að ræða við allt fólkið, blessuð börnin eru til dæmis ótrúleg þegar þau fá að skoða, spá og spyrja,“ segir hún og kveðst pínu þreytt á því að sýna í listasölum þar sem einungis fólkið sem fylgist með listaheiminum mætir.

Listakonan Ragnheiður Mekkín hefur þegar sýnt á Mærudögum á Húsavík.
„Ég eyddi miklum tíma í að tala við almenning um grunntilgang myndlistar en fólk sem mundi aldrei leggja á sig að ganga inn á myndlistarsýningu villist inn í gáminn minn og spurningaflóðið fer í gang. Auðvitað gerist það að fólk snúi sér einn hring og fari svo út en margir gefa sér tíma til að staldra við og skoða. Sumir trúa mér fyrir því að þeir fari aldrei á listsýningar og viti ekkert um listir.“

Að þessu sinni er Ragnheiður Mekkín með sýningu eftir sjálfa sig í gámnum, bæði málverk þar sem hún skoðar líkamsímynd í gegnum leikföng barnanna og líka perluð verk.

„Ég er búin að læra að perla eftir hefðum indíána í Bandaríkjunum og nýti mér þeirra aðferðir en færi yfir í mína liti, mitt munstur og minn stíl. Það að perla er nýja, dýra áhugamálið mitt sem ég nota í myndlistinni. Ég er gjörsamlega heilluð af því og á eftir að gera fleiri perluverk sem verða rándýr en vonandi kaupir þau einhver einhvern tíma.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.