Menning

Í Kaldalón eftir æfingar á Seyðisfirði

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ásthildur, Kirstine Lindeman, Ilkka Heinonen, Noora Nenonen og Kirsi Ojala.
Ásthildur, Kirstine Lindeman, Ilkka Heinonen, Noora Nenonen og Kirsi Ojala. Mynd/Renaud Cambuzat
„Við erum fimm saman, einn dansari, tveir sem spila á alls konar flautur, einn sem leikur á jouhikko, þjóðlegt finnskt hljóðfæri sem líkist langspili, og svo ég á píanó. Þetta verður spennandi,“ segir Ásthildur Ákadóttir tónlistarkona um tónleikana Stretched Present // Teygt Nú sem verða í Kaldalóni í Hörpu á sunnudaginn klukkan 14.

Með þeirri hljóðfærasamsetningu sem Ásthildur lýsir ætlar hópurinn að flytja alls konar tónlist.

„Það verður frumflutningur á þremur verkum,“ segir hún og lýsir sérstaklega einu þeirra sem allur hópurinn hefur samið og flytur með tilþrifum.

„Rauði þráðurinn í því verki eru hljóð sem hreyfing skapar, eins og þegar maður nuddar höndunum saman eða þegar maður gengur, svo þróast þessi hugmynd út í hljóðfærin sem taka við.

Nora er dansari og hún mun túlka samtalið milli tónlistarinnar og líkamans á ævintýralegan hátt.“

Ásthildur er á Seyðisfirði þegar þetta spjall fer fram.

„Við höfum verið að semja og æfa í tónlistarskólanum á Seyðisfirði, það er mjög góður staður. Á morgun (í dag) ætlum við að halda tónleika í heimahúsum á Austfjörðum.“ 

Flytjendur á Stretched Present // Teygt Nú eru:

Ásthildur Ákadóttir píanóleikari og hin danska Kirstine Lindemann flautuleikari skipa dúóið Hungry Dragon. Flutningur dúósins tekur mið af gjörningalist og spuna svo nýjar víddir koma í ljós.

Kirsi Ojala, flautuleikari frá Finnlandi, og Kirstine mynda dúóið FluteMachine sem vinnur með nútímatónlist og spuna fyrir blokkflautur og norrænar þjóðlagaflautur.

Ilkka Heinonen er þekktur sem uppátækjasamur hljóðfæraleikari, hann spilar á jouhikko og leiðir það á óvæntar slóðir. Noora Nenonen er dansari, spuna- og margmiðlunarlistamaður. Þau eru bæði finnsk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.