Menning

Stefán Máni skiptir um forlag

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Stefán Máni með Blóðdropann. "Ég er mjög spenntur fyrir haustinu og hlakka mikið til, en það er best að segja sem minnst um bókina á þessu stigi.“
Stefán Máni með Blóðdropann. "Ég er mjög spenntur fyrir haustinu og hlakka mikið til, en það er best að segja sem minnst um bókina á þessu stigi.“ Vísir/Anton
„Mér fannst bara vera kominn tími á breytingar. Ég var búinn að vera hjá Forlaginu í átta ár og fannst hlutirnir vera komnir á endastöð, farnir að endurtaka sig og staðna,“ segir Stefán Máni spurður hvað hafi valdið því að hann skipti um forlag, flutti sig frá forlaginu yfir til Sagna útgáfu. „Mér finnst ég standa á smá tímamótum sem rithöfundur og finnst mjög hressandi að ganga í endurnýjun lífdaga. Ég er að breytast og þróast sem höfundur og þetta helst allt í hendur.“



Sögur útgáfa taka vel á móti Stefáni Mána og endurútgefa tvær af bókum hans, Myrkravél og Skipið. „Myrkravél var fyrsta bókin sem forleggjari gaf út eftir mig, kom út hjá Máli og menningu 1999 og er því fimmtán ára í ár. Hún fór mjög hljótt á sínum tíma, þannig að ég veit að hún fór fram hjá mjög mörgum og mig langaði að gera henni hærra undir höfði,“ útskýrir Stefán Máni. „Skipið hefur verið ófáanleg í tvö, þrjú ár og bókabúðir hafa mikið verið að kalla eftir henni þannig að það var algjörlega kominn tími á að prenta meira af henni.“



Í haust kemur svo út ný skáldsaga sem Stefán Máni segir að sé á dálítið öðrum nótum en fyrri bækur hans. „Ég er mjög spenntur fyrir haustinu og hlakka mikið til, en það er best að segja sem minnst um bókina á þessu stigi. Láta verkin tala frekar en að lofa upp í ermina á mér. Ég get þó sagt að það er ákveðin stefnubreyting í nýju bókinni.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.