Menning

Kræklingur sem heillar með ljúfum tónum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
„Úr kræklingnum ómar tónlist sem tekur á móti gestum þegar þeir koma út um sporðinn,“ segir Tinna Ottesen, leikmyndahönnuður Fantastar.
„Úr kræklingnum ómar tónlist sem tekur á móti gestum þegar þeir koma út um sporðinn,“ segir Tinna Ottesen, leikmyndahönnuður Fantastar. Vísir/Daníel
Þessi glæsilegi kræklingur sem sjósettur var í gær er hluti leikmyndar í sýningunni Fantastar. Tinna Ottesen hannaði leikmyndina sem inni í Brimhúsinu er í formi hvals sem áhorfendur ganga í gegnum. Eftir þá hreinsunargöngu bíður kræklingurinn við bryggju. „Úr kræklingnum ómar tónlist sem tekur á móti gestum þegar þeir koma út um sporðinn,“ segir Tinna. „Þannig að fólk getur staldrað við og melt það sem það gekk í gegnum í hvalnum á meðan það nýtur þess að horfa og hlusta á kræklinginn.“

„Fantast er orð sem notað er í dönsku og ensku og það íslenska orð sem kemst næst merkingunni er sennilega athafnaskáld,“ segir Tinna. „Fantastinn er draumóramaður með rosalega athafnagleði sem framkvæmir ótrúlegustu hluti sem venjulegu fólki dettur aldrei í hug. Það eru svona týpur í öllum litlum samfélögum, menn sem hrinda einhverju í framkvæmd bara til að geta sagt söguna af því.“

Fantastar er samvinnuverkefni listamanna frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Danmörku undir stjórn Margrétar Vilhjálmsdóttur leikkonu og verður frumsýning í Brimhúsinu við Geirsgötu klukkan 20 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.