Matur

Ómótstæðileg ostamús - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Girnilegur eftirréttur.
Girnilegur eftirréttur.

Thelma Þorbergsdóttir bloggar um mat á síðunni Freistingar Thelmu. Hún deilir uppskrift að ljúffengum eftirrétti með lesendum.

Nutella-ostamús með oreo og rjóma

Fyrir 4-6 manns

12 Oreo-kexkökur

45 g smjör

225 g rjómaostur

210 g Nutella-hnetusmjör

1 tsk. vanilludropar

230 ml rjómi

Toppur

½ lítri rjómi

Súkkulaðispænir

Salthnetur

Aðferð

Setjið Oreo-kex í matvinnsluvél og hakkið vel. Bræðið smjör og blandið því saman við kexið og hrærið vel saman. Skiptið kexblöndunni á milli glasanna og þrýstið niður í botninn. Hrærið rjómaostinn og hnetusmjörið saman þar til blandan verður létt og mjúk. Bætið vanilludropum saman við og hrærið vel. Þeytið rjóma og blandið honum saman við rjómaostsblönduna með sleif. Setjið rjómaostsblönduna í sprautupoka og sprautið henni jafnt í glösin. Setjið plastfilmu yfir glösin og kælið í u.þ.b. tvo tíma.

Toppur

Þeytið rjóma og sprautið honum fallega ofan á ostamúsina. Skreytið með súkkulaðispónum og söxuðum salthnetum. Geymið í kæli þar til ostamúsin er borin fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.