Menning

Schubert í Ævintýrahöllinni Iðnó

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Kammersveit Reykjavíkur. "Við höfum prófað okkur áfram, bæði spilað nútímatónlist og klassíska fyrir krakkana.“
Kammersveit Reykjavíkur. "Við höfum prófað okkur áfram, bæði spilað nútímatónlist og klassíska fyrir krakkana.“
Félagar úr Kammersveit Reykjavíkur flytja þætti úr Oktett eftir Franz Schubert fyrir forvitna tónleikagesti á öllum aldri í Iðnó í hádeginu í dag. „Við erum bara gríðarlega spennt,“ segir Guðrún Hrund Harðardóttir, víóluleikari og listrænn stjórnandi Kammersveitarinnar. „Kammersveitin hefur tekið þátt í Barnamenningarhátíð frá upphafi og það hefur verið mjög gott samstarf. Við höfum prófað okkur áfram, bæði spilað nútímatónlist og klassíska fyrir krakkana og að þessu sinni ákváðum við að kynna þau fyrir Schubert og þessum glæsilega oktett hans.“



Oktettinn, sem tónskáldið Franz Schubert samdi árið 1824, telst til þekktustu kammertónverka tónlistarsögunnar. Hljóðfæraskipanin er klarínett, fagott, horn, tvær fiðlur, víóla, selló og kontrabassi, en auk þess að kynna hljóðfærin sín fyrir tónleikagestum leitast hljóðfæraleikararnir við að svara spurningum tónleikagesta. „Við verðum með kynningar, bæði á verkinu og Schubert sjálfum, fyrir börnin en þetta eru samt fjölskyldutónleikar sem fólk á öllum aldri getur notið,“ segir Guðrún Hrund.



Meðal þess sem hún mun segja frá er æska Schuberts og tónlistarmenntun hans. „Það vakti athygli mína að hann, eins og Mozart og aðrir samtímamenn hans, lærði á mörg hljóðfæri. Byrjaði sex ára að læra bæði á píanó og fiðlu og síðar bættist víóla við. Þetta er aðeins öðru vísi en við eigum að venjast í dag þegar krakkar læra yfirleitt ekki nema á eitt hljóðfæri og við sérfræðingarnir getum heldur ekki hoppað á milli hljóðfæra,“ segir Guðrún Hrund. „Þetta var öðru vísi í þá daga.“



Tónleikarnir hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund og aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.