Menning

Atburðirnir í Gálga-hrauni innblástur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég hef krassað og teiknað frá því ég man eftir mér,“ segir Sæmundur.
"Ég hef krassað og teiknað frá því ég man eftir mér,“ segir Sæmundur. Mynd/úr einkasafni
Sæmundur Gunnarsson hefur opnað listsýningu í húsnæði Ófeigs gullsmiðs á Skólavörðustíg 5.

Sýningin kallast Ljós í hrauni, enda segir listamaðurinn nýlega atburði við Gálgahraun hafa kveikt með honum ljós.

Þetta er sjöunda einkasýning Sæmundar sem kveðst hafa krassað og teiknað frá því að hann man eftir sér.

Hann hefur sótt fjölda námskeiða, meðal annars í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur, hjá Þuríði Sigurðardóttur og ýmis námskeið á vegum Myndlistarfélags Reykjanesbæjar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.