Menning

Nýjar norrænar verðlaunamyndir sýndar fjórum sinnum á dag

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Aðalleikona myndarinnar Monicu Z er hin íslenskættaða Edda Magnason.
Aðalleikona myndarinnar Monicu Z er hin íslenskættaða Edda Magnason. Mynd: NordicPhotos/Getty
„Þetta er annað árið sem Norræna húsið ásamt norrænu sendiráðunum býður til sannkallaðrar kvikmyndaveislu,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hjá Norræna húsinu, sem hefur veg og vanda af undirbúningi Norrænu kvikmyndahátíðarinnar sem hefst í kvöld.



Dagskráin einkennist af nýjum og nýlegum verðlaunamyndum frá öllum Norðurlöndum og ber þar hæst sænsku kvikmyndina Monica Z sem verður opnunarmynd hátíðarinnar. Aðalleikona myndarinnar er hin íslenskættaða Edda Magnason og einnig leikur Sverrir Guðnason þar stórt hlutverk, þau hlutu á dögunum sænsku kvikmyndaverðlaunin, Gullbjölluna, fyrir leik sinn í myndinni.



Hátíðin stendur til 15. apríl og verða frá einni og upp í fjórar sýningar á dag, bæði fyrir börn og fullorðna. „Það verður mjög gott úrval af fjölskyldumyndum,“ segir Þuríður. „Og það er nýlunda hjá okkur. Fyrir utan Monicu Z ber kannski hæst myndina Jeg er din frá Noregi, sem hefur hlotið mjög mikið lof, en þetta eru allt mjög góðar myndir.“



Fjölskyldumyndirnar eru sýndar daglega, annaðhvort klukkan 14 eða 16, og almennar sýningar eru klukkan 16, 18 og 20 flesta dagana en nánar má kynna sér sýningartíma hverrar myndar á heimasíðu Norræna hússins, norraenahusid.is. Frítt er inn á allar sýningar og eru myndir sýndar með enskum texta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.