Menning

Hylla hafið og sjómennskuna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þeir syngja og syngja, herramennirnir í Hreppunum, undir stjórn Edit Monár við undirleik manns hennar, Miklós Dalmay.Mynd/Einkasafn
Nú sigla svörtu skipin, er yfirskrift söngskemmtana sem Karlakór Hreppamanna efnir til á næstunni. Titillinn vísar í lag Karls Ó. Runólfssonar við ljóð Davíðs Stefánssonar og segir sitt um dagskrána.

„Stjórnandinn okkar, hún Edit Molnár, er gríðarlega metnaðarfull og ögrar okkur á hverju ári með nýjum og spennandi verkefnum. Við vorum með óperuprógramm í fyrra og fórum með það til Ítalíu, nú er það hafið og sjómennskan sem sungið er um,“ segir Gylfi Þorkelsson, einn kórfélaganna.

Spurður hvort það sé ekki sérstakt að sveitakarlar séu uppteknir af því efni svarar hann:

„Jú, en Edit veit að mörg af mögnuðustu kórverkum íslenskra tónverka eru um baráttu sjómanna við hafið enda er hún stór þáttur í íslenskri menningu.“

Gylfi segir þeim líka málið skylt því Hreppamaðurinn Sigurður Ágústsson í Birtingarholti hafi samið lag við hið þekkta kvæði Suðurnesjamenn eftir Ólínu Andrésdóttur.

Til að gera viðfangsefninu enn betri skil hefur kórinn látið vinna söguleg atriði upp úr frásögnum, ljóðum og þjóðsögum og verða þau fléttuð saman við sönginn.

Fyrstu tónleikar Hreppamanna eru í Gamla bíói á sunnudaginn klukkan 20.



Gunnþóra Gunnarsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.