Fótbolti

Skref upp á við að fara til Skandinavíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson er einn af nýju mönnunum í Noregi.
Viðar Örn Kjartansson er einn af nýju mönnunum í Noregi.
Sem fyrr á Ísland nokkuð marga fulltrúa í úrvalsdeildunum í Svíþjóð og Noregi en nýtt tímabil í báðum deildum hefst nú um helgina. Norðmenn riðu á vaðið í gærkvöldi en fyrstu leikirnir í Svíþjóð fara fram á morgun.

Samtals leika fimmtán Íslendingar í norsku deildinni og níu í þeirri sænsku, eins og sjá má hér til hliðar. Íslendingar eiga fulltrúa í níu af sextán liðum í Noregi og átta mismunandi liðum í Svíþjóð.

Þess má svo geta að fimm íslenskir leikmenn leika með jafn mörgum liðum í dönsku úrvalsdeildinni en síðari hluti tímabilsins þar í landi hófst nýlega eftir vetrarfrí.

Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara Íslands, fagnar því að eiga svo marga leikmenn í þessum deildum.

„Það er hraðari bolti spilaður í báðum þessum deildum en hér heima og þá er keppnistímabilið lengra. Ég tel því að þetta sé tvímælalaust skref upp á við,“ segir Heimir í samtali við Fréttablaðið.

Alls fóru átta leikmenn úr Pepsi-deildinni til landanna tveggja og óttast Heimir ekki að þeir hafi tekið skrefið í atvinnumennskuna of snemma.

„Flestir af ungu strákunum sem hafa farið út eru í Belgíu, Hollandi eða Danmörku. Ég held að þessir strákar sem fóru til Noregs og Svíþjóðar séu tilbúnir enda hafa þeir allir sannað sig hér heima. Almennt tel ég best að gera það áður en farið er annað,“ segir Heimir.

Það verður því ærið verkefni fyrir landsliðsþjálfarana að fylgjast með öllum þeim atvinnumönnum sem Ísland hefur eignast. „Þetta eru tæplega 90 strákar og það gefur augaleið að við getum ekki fylgst með þeim öllum. En sem betur fer höfum við aðgang að upptökum af leikjum úr öllum þeirra deildum og getum því sótt okkur leiki aftur í tímann.“

Aðeins fáeinir af þessum leikmönnum hafa verið fastamenn í íslenska landsliðinu en Heimir segir að það sé gott „milliskref“ að fara til Norðurlandanna. „Ef menn sanna sig í þessum löndum eiga þeir möguleika á að fara í enn sterkari deildir sem þjónar þá landsliðinu vel.“

grafík/thanos



Fleiri fréttir

Sjá meira


×