Menning

Það má alveg hlæja þótt það sé drama

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Birgitta Birgisdóttir tekur Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur í karphúsið um borð í Ferjunni.
Birgitta Birgisdóttir tekur Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur í karphúsið um borð í Ferjunni. Mynd: Grímur Bjarnason
„Þetta er ótrúlega áhugavert verk,“ segir Birgitta Birgisdóttir, ein leikaranna í nýju verki Kristínar Marju Baldursdóttur sem Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld. „Þetta er fyrsta leikrit Kristínar Marju og dálítið ólíkt því sem hún hefur skrifað áður. Það eru mikil forréttindi að fá að takast á við nýtt íslenskt verk og við höfum þurft að vinna með ýmislegt sem ekki kemur til álita í verkum sem oft hafa verið sett upp áður. Þetta hefur verið mjög skemmtileg vinna en rosalega krefjandi.“



Spurð hvort þetta sé gamanleikur eða drama dregur Birgitta við sig svarið en kemst svo að þeirri niðurstöðu að þetta sé hvort tveggja. „Við höfum reyndar fundið svolítið fyrir því að fólk viti ekki alveg hvort það megi hlæja, en þetta er mjög fyndið, bara eins og lífið er ef maður horfir þannig á það. Það sem kannski sjokkerar er hversu ofbeldisfullar konurnar eru hver við aðra, við viljum oft halda að konur beiti ekki ofbeldi, en við gerum það og það má alveg segja frá því.“



Verkið fjallar um fimm íslenskar konur og þrjá karla sem stödd eru erlendis og neyðast til að sigla saman heim til Íslands á ryðguðum dalli. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir, nýskipaður leikhússtjóri Borgarleikhússins. Vytautas Narbutas hannar leikmynd, Stefanía Adolfsdóttir búninga, Þórður Orri Pétursson lýsingu. Hallur Ingólfsson semur tónlist fyrir verkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.