Menning

Kvikmyndahátíð á Höfn

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sker eftir Eyþór Jóvinsson er ein myndanna á hátíðinni.
Sker eftir Eyþór Jóvinsson er ein myndanna á hátíðinni.
Íslenskar og erlendar stutt- og heimildarmyndir verða sýndar frítt í Nýheimum á Höfn í dag og á morgun.

Það er liður í hátíðinni Reykjavík Shorts & Docs Festival sem í þetta sinn þjófstartar á Höfn en verður á dagskrá í Reykjavík 3. til 9. apríl.

Fjórir sýningarflokkar verða í Nýheimum. Þeir eru; Ungt fólk, Konur um konur, Jaðaríþróttir og Úr alfaraleið.

Auk þess verða umræður um kvikmyndagerð á Kaffi Horninu á morgun klukkan 15.

Lesendur Movie Maker Magazine völdu Reykjavík Shorts & Docs Festival meðal fimm svölustu stuttmyndahátíða heims nýverið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.