Menning

Skepna flytur gjörning í glugga

Guðlaug Mía Eyþórsdóttir er myndlistarmaður og einn stofnenda Kunstchlager.
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir er myndlistarmaður og einn stofnenda Kunstchlager. MYND/Úr einkasafni
Í dag opnar Guðlaug Mía Eyþórsdóttir sýninguna Street Performance í Wind and Weather Gallery á Hverfisgötu 37 auk þess sem hún, ásamt öðrum, gefur út bókina Vísnabók með CD, en í henni má finna ljóð, lög og upplestra myndlistarmannanna Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur, Guðlaugar sjálfrar, Helga Þórssonar og Sindra Leifssonar.

Útgáfuteiti bókarinnar verður haldið klukkan 20.00 í Kunstschlager, Rauðarárstíg 1.

„Sýningin í Wind and Weather Gallery er önnur einkasýning mín. Þar verður skepna sem er með gjörning fyrir vegfarendur. Ég vil mjög lítið segja um skepnuna, en fólk verður að kíkja á sýninguna til að sjá hvaða skepna þetta er,“ segir Guðlaug leyndardómsfull.

Sýningin stendur út apríl og hún er opin allan sólarhringinn.

„Þetta er gluggagallerí þannig að fólk getur bara gengið fram hjá og séð sýninguna,“ bætir hún við.

„En svo er það Vísnabók með CD. Við erum fjögur sem erum að gefa hana út. Í bókinni eru vísur af ýmsum toga og vísnalög við vísurnar – ég myndi segja að þetta væri ný kynslóð af vísnabókinni gömlu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.