Menning

Arkitektar geta lært af Katrínu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Listakonan Katrín mun sjálf lýsa verki sínu Undirstöðu á málþinginu, í spjalli við Julian E. Bronner, blaðamann hjá Artforum.
Listakonan Katrín mun sjálf lýsa verki sínu Undirstöðu á málþinginu, í spjalli við Julian E. Bronner, blaðamann hjá Artforum. Fréttablaðið/GVA
„Þetta verður samræða milli hópsins um tengsl listaverka Katrínar og arkitektúrs. Þrjú okkar eiga það sammerkt að hafa unnið með Katrínu í einhverju af hennar verkum,“ segir Pétur Ármannsson arkitekt um málþing Listasafns Reykjavíkur í tengslum við sýningu Katrínar Sigurðardóttur.



„Katrín notar sömu miðla og arkitektar en á annan hátt því hún gerir það út frá sjónarhóli myndlistar,“ segir Pétur og segir um marga snertifleti að ræða milli listaverka Katrínar og arkitektúrs.

„Hún notar til dæmis módelið sem tæki til að rannsaka og skrásetja staði og hvernig ákveðin tímabil skilja eftir sig spor í mismunandi stílum. Þetta er einn þátturinn.

Síðan vinnur hún með hvernig maðurinn skynjar rýmið, mælikvarða og stærðarhlutföll. Verkið sem hún var með í Listasafni Íslands um árið þar sem maður þurfti að klifra upp í stiga og stinga höfðinu í gegnum gat til að sjá landslag og höfuðið á manni var hluti af landslaginu, það var dæmigert fyrir hana,“ segir Pétur.

Hann telur spennandi fyrir arkitekta að skoða verk Katrínar því þeir geti margt af henni lært.



Ásamt Pétri verða arkitektarnir Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir í pallborði, ásamt Sigrúnu Birgisdóttur, deildarforseta hönnunar-og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands sem stýrir umræðum. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, flytur inngang og Julian E. Bronner, blaðamaður hjá Artforum, ræðir verkið Undirstöðu við Katrínu sjálfa.



Málþingið hefst klukkan 13 á laugardag og fer fram á íslensku og ensku.  Aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.