Menning

Svavar, Aðalsteinn og Steinn í Gunnarshúsi

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Svavar Knútur: „Dagskráin er í máli, músík og myndum og við höfum flutt hana í um hundrað skólum.“
Svavar Knútur: „Dagskráin er í máli, músík og myndum og við höfum flutt hana í um hundrað skólum.“ Vísir/GVA
Á hundrað ára afmæli Steins Steinars, haustið 2008, þá ákváðum við Aðalsteinn Ásberg að vera með dagskrá um Stein fyrir nemendur í grunnskólum,“ segir Svavar Knútur spurður hvernig samstarf hans og Aðalsteins hafi komið til. „Dagskráin er í máli, músík og myndum og við höfum flutt hana í um hundrað skólum um allt land á þessum árum.“

Svavar segir þá Aðalstein alltaf hafa skemmt sér vel við að flytja dagskrána og að nemendur skólanna hafi líka kunnað vel að meta hana. „Þetta hefur verið vinsælt prógramm, enda blöndum við saman lögum við ljóð Steins, frásögnum af honum og eins lesum við nokkur ljóð eftir hann. Við höfum lengi rætt það að auðvitað eigi þessi dagskrá erindi við almenning og nú ætlum við að láta verða af því að leyfa fleirum en grunnskólabörnum að heyra hana.“

Dagskráin sem þeir félagar flytja í Gunnarshúsi í kvöld nefnist „Með hugann fullan af hetjudraumum“ og Svavar segir þá hafa breytt henni dálítið og lagað að smekk fullorðinna. „Ekki það að við tölum niður til krakkanna, en það er ýmislegt sem maður segir ekki við börn.“

Dagskráin hefst klukkan 20.30, aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.