Menning

Afmæli Verdis endurtekið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þetta fólk sló í gegn í nóvember.
Þetta fólk sló í gegn í nóvember. Fréttablaðið/Pjetur
Óp-hópurinn, í samstarfi við Vonarstrætisleikhúsið, flytur efni sýningar sem var afmælisveisla tónskáldsins Verdis á liðnu ári, í Salnum á morgun, föstudag, klukkan 20.

Þar bregður Randver Þorláksson sér í gervi Verdis og býður til veislu og rifjar upp hitt og þetta frá ævi sinni milli þess sem flutt eru atriði úr verkum skáldsins.

Sveinn Einarsson leikstýrir sýningunni og Antonia Hevesi bregður sér í gervi hljómsveitarinnar með aðstoð flygilsins.

Söngvarar eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran, Egill Árni Pálsson tenór, Erla Björg Káradóttir sópran, Hörn Hrafnsdóttir mezzósópran, Jóhanna Héðinsdóttir mezzósópran, Rósalind Gísladóttir sópran og Valdimar Hilmarsson baritón. Um lýsingu sér Páll Ragnarsson.

Sýningin fékk fimm stjörnur í Fréttablaðinu þegar hún var frumflutt í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.