Menning

Davíðshús opið í kvöld

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Davíð var smekkmaður sem hafði huggulegt í kringum sig.
Davíð var smekkmaður sem hafði huggulegt í kringum sig.
Heimili Davíðs Stefánssonar skálds á Bjarkarstíg 6 á Akureyri verður gestum til sýnis í kvöld milli klukkan átta og tíu þeim að kostnaðarlausu. Tilefnið er að hann hefði átt afmæli í dag, hann var fæddur 21. janúar 1895.



„Það er nánast eins og Davíð hafi bara brugðið sér frá því heimilið er eins og hann skildi við það,“ segir Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Safnið hefur umsjón með Davíðshúsi sem hefur verið varðveitt sem safn eftir að skáldið féll frá 1964. Þar er líka fræðimannaíbúð.



Davíð var fagurkeri og safnari af guðs náð, að sögn Haraldar Þórs. Hann segir húsakynnin  á Bjarkarstígnum bera smekkvísi Davíðs glöggt vitni, þau séu full af bókum, listaverkum og persónulegum munum.



Hálf öld er í ár frá andláti Davíðs. Leikfélag Akureyrar minnist þess með leikverki hans, Gullna hliðinu, sem frumsýnt var í Samkomuhúsinu um liðna helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.