Sport

Kristinn: Ég horfi svolítið mikið til Íslandsmetsins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Á flugi Kristinn varð Íslandsmeistari á Akureyri síðastliðið sumar. Mynd/Gunnlaugur Júlíusson
Á flugi Kristinn varð Íslandsmeistari á Akureyri síðastliðið sumar. Mynd/Gunnlaugur Júlíusson
„Ég er orðinn mjög spenntur. Maður ætlar aldrei að tapa á heimavelli,“ segir langstökkvarinn Kristinn Torfason. FH-ingurinn fær verðuga keppni á Reykjavik International Games í Laugardalshöll á sunnudaginn því von er á tveimur öflugum erlendum keppendum. Annars vegar Dananum Morten Jensen og hins vegar Bretanum Danier Gariner.

„Það verður gaman að reyna að vinna Morten aftur,“ segir Kristinn um hinn 31 árs mótherja sinn sem hann þekkir vel til. Sá á best 8,25 metra frá árinu 2005 og fékk bronsverðlaun á EM innanhúss árið 2011 með stökki upp á 7,64 metra.

„Það er svolítið langt síðan hann stökk sitt besta. Ég held að þetta gæti orðið mjög jöfn keppni,“ segir Kristinn sem hlakkar til sunnudagsins.

„Stuðningurinn á heimavelli er alltaf meiri og fullt af fólki sem mætir.“

Kristinn þekkir aftur á móti minna til breska kappans sem verður 24 ára á árinu. Gariner á best 7,58 metra frá því í fyrra en hann er öflugur hlaupari líkt og Hafnfirðingurinn. Okkar maður á best 7,77 metra innanhúss frá árinu 2011 en Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar í greininni er 7,82 metrar.

„Ég horfi svolítið mikið til Íslandsmetsins,“ segir Kristinn sem langar líka að fljúga yfir átta metra múrinn í sumar. Það sé því sem næst heilög tala líkt og 80 metrarnir í spjótkasti.

„Það er eitthvað sem maður er alltaf með í kollinum.“

Íslandsmet Jóns Arnars utanhúss er einmitt átta metrar sléttir. „Ég held að það gæti gerst í ár. Ég er í mjög góðu formi og gæti hitt á það.“

Langstökkskeppnin á sunnudag hefst klukkan 13.15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×