Fótbolti

Markalaust hjá lærisveinum Ólafs

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafur Kristjánsson.
Ólafur Kristjánsson. vísir/stefán
Lærisveinar Ólafs Kristjánssonar í Nordsjælland gerðu markalaust jafntefli við Esbjerg á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Eftir sex leiki án sigurs vann Nordsjælland loks leik í síðustu umferð þegar það hafði betur gegn Bröndby á heimavelli, en liðið náði ekki að fylgja þeim fína sigri eftir með öðrum sigri í kvöld.

Nordsjælland hefur nú aðeins unnið einn leik af síðustu átta og innbyrt sex stig af 24 mögulegum í þeim leikjum.

Samt sem áður er liðið í ágætri stöðu eftir góða byrjun, en það er með 25 stig í fimmta sæti deildarinnar að loknum 17 umferðum.

Með sigri í kvöld hefði Nordsjælland jafnað Bröndby að stigum sem er í fjórða sætinu, en nú eru tvö stig í Bröndby og sex stig í Randers sem er í þriðja sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×