Fótbolti

Orri kveður AGF

Orri fyrir landsleik á dögunum.
Orri fyrir landsleik á dögunum. vísir/daníel
U-21 árs landsliðsmaðurinn Orri Sigurður Ómarsson verður ekki áfram hjá danska liðinu AGF og fer frá félaginu um áramótin.

Hann hefur verið hjá félaginu síðan 2012 og bætt leik sinn mikið síðan hann fór til Danmerkur.

„Ég hef ákveðið að leita að nýjum áskorunum. Ég þarf meiri spiltíma og vera í liði þar sem ég er fastamaður. Ég hef átt frábæran tíma hjá AGF og skulda félaginu mikið," segir Orri við heimasíðu AGF.

„Ég hef lært mikið af mörgum þjálfum hjá AGF og bætt mig mikið."

Orri segir að hann ætli að byrja á því að fara heim til Íslands og leita að félagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×