Fótbolti

Hólmfríður og Þórunn fá nýjan þjálfara

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þessar tvær fá nýjan þjálfara á næsta tímabili.
Þessar tvær fá nýjan þjálfara á næsta tímabili. Vísir/Aðsend
Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir munu fá nýjan þjálfara hjá Avaldsnes því Arne Møller er hættur sem þjálfari liðsins. Þetta var tilkynnt eftir leik liðsins í dag.

Møller hafði samning út næsta tímabil, en stjórnin og hann komust að samkomulagi um að rifta samningnum.

„Við höfum ákveðið að slíta okkur samstarfi. Við vorum ekki sammála um hver næstu skref með liðin væru," sagði Hans Haukås, formaður Avaldsnes.

Haugesund dagblaðið hefur samkvæmt heimildum sínum að nokkrir leikmenn höfðu verið ósáttir með þjálfunaraðferðir Möller; þeir hefðu viljað erfiðari æfingar og æfa oftar. Ekki eru leikmennirnir nafngreindir.

Avaldsnes lenti í fimmta sæti norsku úrvalsdeildarinnar sem var langt undir væntingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×