Fótbolti

Real vill framlengja samning Ancelotti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Forráðamenn Real Madrid eru byrjaðir að ræða við Carlo Ancelotti um nýjan samning við félagið. Núverandi samningur hans rennur út í júní 2016.

Real Madrid komst á topp spænsku úrvalsdeildarinnar um helgina en liðið hefur verið á miklu skriði síðustu vikurnar eftir slæma byrjun í haust. Real hefur nú unnið ellefu leiki í röð.

Talið er að félagið muni bjóða honum eins eða tveggja ára framlengingu á núverandi samningi en sjálfur hefur Ancelotti sagt að hann vilji klára sinn feril í Madrídarborg.

Undir stjórn Ancelotti varð Real Madrid Evrópumeistari í vor sem og bikarmeistari á Spáni. Hann hefur áður unnið meistaratitla með AC Milan, Chelsea og PSG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×