Fengu að sjá leynilegar reglur um valdbeitingarheimildir lögreglunnar Aðalsteinn Kjartansson skrifar 4. nóvember 2014 14:29 Helgi sagði reglurnar vekja upp spurningar sem hann gæti ekki rætt vegna trúnaðar um þær. Vísir / GVA
Þingmenn í allsherjar- og menntamálanefnd fengu í morgun að skoða leynilegar reglur lögreglunnar um notkun vopna. Þeir þurftu að kvitta fyrir móttöku og skil á reglunum, þeir voru beðnir um trúnað og þeir máttu ekki halda eftir eintaki af reglunum. Þetta sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata og fulltrúi í nefndinni, á Alþingi í dag. Reglurnar eru hvergi birtar opinberlega og er, eins og fram komi í máli Helga, strangur trúnaður um þær. Helgi telur það þó ekki þurfa að vera. „Eftir að hafa séð þessar reglur þá fullyrði ég að þegar allt komi til alls þá veki leyndin yfir þeim meiri ótta en þann sem borgarar mættu búast við ef leyndinni væri aflétt,“ sagði hann. Nefndin fundaði í morgun með fulltrúum Landhelgisgæslunnar um byssukaup og gjafir frá norska hernum. Greint hefur verið frá því að gæslan hafi flutt inn 310 hríðskotabyssur og annan búnað frá Noregi. Málið hefur verið gagnrýnt harðlega en ekki var haft samráð við þingið eða stjórnvöld áður en ákvörðun var tekin um að fá vopnin. „Við vorum að fara yfir þessar reglur í þessari nefnd vegna þessa hergagnamáls sem hefur nú verið mikið til umræðu í þjóðfélaginu og reglurnar svara mörgum spurningum, sem ég get ekki rætt hér og ég get ekki rætt í nefnd vegna þess að ég hef ekki eintak af reglunum,“ sagði Helgi í ræðunni „Þær vekja líka margar spurningar sem ég get ekki rætt hér og við getum ekki rætt í nefnd, vegna þess að við höfum ekki eintak af reglunum.“ Helgi sagði augljóst af ummælum í fjölmiðlum að dæma að fulltrúar gæslunnar og lögreglunnar hafi talað með þeim hætti að þeir vitnuðu sem minnst til umræddra reglna. „Þetta þýðir það að svörin sem við fáum héðan og þaðan eru ýmist óskýr eða beinlínis villandi. Hvorugt er í lagi þegar við erum að reyna að taka lýðræðislegar ákvarðanir um það hvernig við ætlum að haga löggæslu í þessu landi,“ sagði hann.
Alþingi Tengdar fréttir Fjölgun lögreglumanna mikilvægari en vopnavæðing Lögreglukona og mannfræðingur segir umræðu um vopnaburð lögreglumanna á villigötum. Aðgengi að vopnum sé ekki til þess fallið að auka öryggi. 29. október 2014 19:37 Það sem við vitum um byssurnar frá norska hernum Landhelgisgæslan hafði milligöngu um afhendingu á 150 MP5 hríðskotarifflum frá norska hernum til ríkislögreglustjóra. Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna gagnrýna harðlega að svo mikið magn vopna hafi verið afhent lögreglunni án sérstaks samþykkis ráðherra eða umræðu í þinginu. 22. október 2014 19:20 Aðstoðarmaður ráðherra segist ekki hafa logið Sagði að byssurnar hefðu verið gjöf frá Norðmönnum. Norski herinn segir hinsvegar byssurnar hafi verið seldar fyrir ellefu milljónir. 24. október 2014 13:14 Landhelgisgæslan keypti hríðskotabyssurnar Upplýsingafulltrúi norska hersins segir að Landhelgisgæslan hafi keypt byssurnar. 23. október 2014 18:21 Svona heyrist þegar skotið er úr MG3 hríðskotabyssum eins sem gæslan á Gæslan fékk tíu byssur af gerðinni Rheinmetall MG3 að gjöf frá norska hernum. 29. október 2014 23:15 „Lögreglan í Danmörku er ekki einu sinni með MP5“ „Krakkarnir mínir fá engar leikfangabyssur hér á Íslandi,“ segir Daninn Martin Christensen sem ákvað 17 ára gamall að ganga í danska herinn. 28. október 2014 08:44 Allt sem við vitum um byssurnar á 90 sekúndum Staðreyndirnar sem liggja fyrir í byssumálinu. 27. október 2014 13:11 Vatnsbyssumótmæli gegn hríðskotabyssum Fólk er hvatt til að taka með sér vatnsbyssur í mótmæli við lögreglustöðina á Hverfisgötu í dag. 24. október 2014 14:53 Lögreglan ætlar ekki að borga fyrir vopnin Samkvæmt kaupsamningi Landhelgisgæslunnar og norska hersins átti að greiða jafnvirði 11,5 milljóna króna fyrir 250 hríðskotabyssur. Ríkislögreglustjóri á von á að fá 150 byssur án endurgjalds. Gæslan segist ekki hafa greitt fyrir byssurnar. 24. október 2014 07:00 Ráðherrar sverja af sér vélbyssur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segist ekki haft nein afskipti af komu 250 MP5-hríðskotabyssa hingað til lands. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir að lögreglan hafi heimild til að endurnýja búnað sinn án þess að ráðherra skipti 25. október 2014 08:00 Utanríkisráðherra segir eðlilegt að lögreglan endurnýi vopnabúnað Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir að utanríkisráðuneytið hafi ekki haft neina aðkomu að kaupum Landhelgisgæslunnar á 250 hríðskotabyssum frá Noregi. 24. október 2014 14:48 Utanríkisráðuneytið kom ekki að vopnakaupunum Utanríkisráðherra segist með engum hætti hafa komið að kaupunum á vélbyssunum frá Noregi þvert á það sem kom fram á fundi Allsherjarnefndar Alþingis í vikunni. 25. október 2014 12:45 Íslenska ríkið greiðir aðeins sendingarkostnaðinn af hríðskotabyssunum 150 Lögreglan hefur tekið 35 hríðskotabyssur í notkun á æfingasvæði lögreglunnar. 22. október 2014 07:00 MP5 sögð öruggari en skammbyssa Ekkert lögregluembættanna hefur enn farið fram á að fá MP5-hríðskotabyssur til afnota en yfirmaður lögreglunnar á Akureyri segir hríðskotabyssurnar öruggari en skammbyssur og því verði líklega farið fram á að fá þær. 23. október 2014 07:00 „Ég er ekki einu sinni með skotvopnaleyfi“ „Þegar ég stundaði nám í lögregluskólanum fór fram eina þjálfun mín í skotvopnum og var hún í mýflugumynd.“ 29. október 2014 07:38 Segja að aldrei hafi farið fram neinar greiðslur fyrir byssurnar Landhelgisgæslan hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að fram kom í fjölmiðlum í dag að hún hefði í raun keypt 250 byssur frá Norðmönnum. 23. október 2014 21:10 Tollskylt hafi vopn verið keypt Tollstjóri hefur innsiglað norsku hríðskotabyssurnar vegna óvissu um hvort þær eru keyptar eða gefnar. 1. nóvember 2014 11:30 Höfum fengið 310 hríðskotabyssur frá norska hernum frá 2011 Ríkislögreglustjóri óskaði eftir vopnum frá Norðmönnum en Landhelgisgæslan hafði milligöngu um afhendingu vopnanna. 27. október 2014 16:27 Mest lesið Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Erlent Foreldrar barna á Brákarborg langþreyttir á fáliðun og reglulegum lokunum Innlent Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Erlent Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Erlent „Þetta er mjög slæmt fyrir samfélagið í heild sinni“ Innlent Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Erlent Flutti frænda sinn til landsins og faðirinn ákærður fyrir vanrækslu Innlent Vilja rektor sem afþakkar „illa fengið fé“ Innlent „Ömurlegasta sem fólk getur fengið sem bólfélaga“ Innlent Ofsótti lesbíur um margra mánaða skeið: „Það er ekkert ólöglegt að segja að ég vilji kála henni“ Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn í Súðavík, faraldur veggjalúsar og vatnavextir Ofsótti lesbíur um margra mánaða skeið: „Það er ekkert ólöglegt að segja að ég vilji kála henni“ Þórdís segir að það yrði stefnubreyting bjóði hún sig ekki fram til formanns Ríkisstjórnin óskar nú eftir sparnaðarráðum frá forstöðumönnum Hrafnadís er afbökun og fær því nei Eyjólfur tekur fyrstu skóflustunguna að borgarlínu á morgun Margrét Gauja tekur við Lýðskólanum á Flateyri Síðasti dagur Dags í borgarráði í dag Flutti frænda sinn til landsins og faðirinn ákærður fyrir vanrækslu „Þetta er mjög slæmt fyrir samfélagið í heild sinni“ „Þetta skilgreinir þorpið“ Stefnir allt í verkfall slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna Viðvarandi glitský yfir höfuðstað Norðurlands Þrjátíu ár liðin frá harmleiknum í Súðavík Vilja rektor sem afþakkar „illa fengið fé“ Reikna með 8,4 milljónum farþega Tilkynningum um barnaníð fjölgaði verulega Varað við ísingu með umskiptum í veðri Almennir starfsmenn geti verið leið inn fyrir tölvuþrjóta Foreldrar barna á Brákarborg langþreyttir á fáliðun og reglulegum lokunum Þrjátíu ár liðin frá snjóflóðunum á Súðavík Ráðherra segir dóm um Hvammsvirkjun áhyggjuefni „Ömurlegasta sem fólk getur fengið sem bólfélaga“ Ætlar ekki í formanninn og varar við eftirlíkingum Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Stjórnsýslan í kringum sjókvíaeldi sé gölluð Bjóst ekki við greiðslum frá Alþingi Segir nafnlausa konu fara með rangt mál um bróður hans Ákærður fyrir að drepa móður sína Vopnahlé á Gaza, brúin sem klúðraðist og tvöfaldar greiðslur Sjá meira
Fjölgun lögreglumanna mikilvægari en vopnavæðing Lögreglukona og mannfræðingur segir umræðu um vopnaburð lögreglumanna á villigötum. Aðgengi að vopnum sé ekki til þess fallið að auka öryggi. 29. október 2014 19:37
Það sem við vitum um byssurnar frá norska hernum Landhelgisgæslan hafði milligöngu um afhendingu á 150 MP5 hríðskotarifflum frá norska hernum til ríkislögreglustjóra. Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna gagnrýna harðlega að svo mikið magn vopna hafi verið afhent lögreglunni án sérstaks samþykkis ráðherra eða umræðu í þinginu. 22. október 2014 19:20
Aðstoðarmaður ráðherra segist ekki hafa logið Sagði að byssurnar hefðu verið gjöf frá Norðmönnum. Norski herinn segir hinsvegar byssurnar hafi verið seldar fyrir ellefu milljónir. 24. október 2014 13:14
Landhelgisgæslan keypti hríðskotabyssurnar Upplýsingafulltrúi norska hersins segir að Landhelgisgæslan hafi keypt byssurnar. 23. október 2014 18:21
Svona heyrist þegar skotið er úr MG3 hríðskotabyssum eins sem gæslan á Gæslan fékk tíu byssur af gerðinni Rheinmetall MG3 að gjöf frá norska hernum. 29. október 2014 23:15
„Lögreglan í Danmörku er ekki einu sinni með MP5“ „Krakkarnir mínir fá engar leikfangabyssur hér á Íslandi,“ segir Daninn Martin Christensen sem ákvað 17 ára gamall að ganga í danska herinn. 28. október 2014 08:44
Allt sem við vitum um byssurnar á 90 sekúndum Staðreyndirnar sem liggja fyrir í byssumálinu. 27. október 2014 13:11
Vatnsbyssumótmæli gegn hríðskotabyssum Fólk er hvatt til að taka með sér vatnsbyssur í mótmæli við lögreglustöðina á Hverfisgötu í dag. 24. október 2014 14:53
Lögreglan ætlar ekki að borga fyrir vopnin Samkvæmt kaupsamningi Landhelgisgæslunnar og norska hersins átti að greiða jafnvirði 11,5 milljóna króna fyrir 250 hríðskotabyssur. Ríkislögreglustjóri á von á að fá 150 byssur án endurgjalds. Gæslan segist ekki hafa greitt fyrir byssurnar. 24. október 2014 07:00
Ráðherrar sverja af sér vélbyssur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segist ekki haft nein afskipti af komu 250 MP5-hríðskotabyssa hingað til lands. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir að lögreglan hafi heimild til að endurnýja búnað sinn án þess að ráðherra skipti 25. október 2014 08:00
Utanríkisráðherra segir eðlilegt að lögreglan endurnýi vopnabúnað Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir að utanríkisráðuneytið hafi ekki haft neina aðkomu að kaupum Landhelgisgæslunnar á 250 hríðskotabyssum frá Noregi. 24. október 2014 14:48
Utanríkisráðuneytið kom ekki að vopnakaupunum Utanríkisráðherra segist með engum hætti hafa komið að kaupunum á vélbyssunum frá Noregi þvert á það sem kom fram á fundi Allsherjarnefndar Alþingis í vikunni. 25. október 2014 12:45
Íslenska ríkið greiðir aðeins sendingarkostnaðinn af hríðskotabyssunum 150 Lögreglan hefur tekið 35 hríðskotabyssur í notkun á æfingasvæði lögreglunnar. 22. október 2014 07:00
MP5 sögð öruggari en skammbyssa Ekkert lögregluembættanna hefur enn farið fram á að fá MP5-hríðskotabyssur til afnota en yfirmaður lögreglunnar á Akureyri segir hríðskotabyssurnar öruggari en skammbyssur og því verði líklega farið fram á að fá þær. 23. október 2014 07:00
„Ég er ekki einu sinni með skotvopnaleyfi“ „Þegar ég stundaði nám í lögregluskólanum fór fram eina þjálfun mín í skotvopnum og var hún í mýflugumynd.“ 29. október 2014 07:38
Segja að aldrei hafi farið fram neinar greiðslur fyrir byssurnar Landhelgisgæslan hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að fram kom í fjölmiðlum í dag að hún hefði í raun keypt 250 byssur frá Norðmönnum. 23. október 2014 21:10
Tollskylt hafi vopn verið keypt Tollstjóri hefur innsiglað norsku hríðskotabyssurnar vegna óvissu um hvort þær eru keyptar eða gefnar. 1. nóvember 2014 11:30
Höfum fengið 310 hríðskotabyssur frá norska hernum frá 2011 Ríkislögreglustjóri óskaði eftir vopnum frá Norðmönnum en Landhelgisgæslan hafði milligöngu um afhendingu vopnanna. 27. október 2014 16:27
Ofsótti lesbíur um margra mánaða skeið: „Það er ekkert ólöglegt að segja að ég vilji kála henni“ Innlent
Ofsótti lesbíur um margra mánaða skeið: „Það er ekkert ólöglegt að segja að ég vilji kála henni“ Innlent