Fótbolti

Jón Guðni og Rúnar á sínum stað í byrjunarliði Sundsvall

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Guðni hefur verið fastamaður í liði Sundsvall á tímabilinu.
Jón Guðni hefur verið fastamaður í liði Sundsvall á tímabilinu. Heimasíða Sundsvall
GIF Sundsvall vann 1-2 sigur á Syrianska FC á útivelli í sænsku B-deildinni í fótbolta í kvöld.

Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson voru að venju í byrjunarliði Sundsvall og léku allan leikinn.

Sundsvall komst með sigrinum upp í annað sætið í deildinni, en liðið er með jafn mörg stig og topplið Hammarby, en lakari markatölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×