Íslenski boltinn

Nýr þjálfari hjá kvennaliði FH

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
FH fékk aðeins tólf stig og endaði í 9. og næstsíðasta sæti Pepsi-deildar kvenna.
FH fékk aðeins tólf stig og endaði í 9. og næstsíðasta sæti Pepsi-deildar kvenna. Vísir/Anton Brink
Orri Þórðarson verður næsti þjálfari kvennaliðs FH í fótbolta, en leikmönnum liðsins var tilkynnt þetta í gær. Þetta kemur fram á Fótbolta.net í dag.

Orri, sem stýrði kvennaliði FH sumarið 2007, tekur við þjálfarastöðunni af Þórði Jenssyni, en FH féll í 1. deild undir hans stjórn í sumar.

Orri, sem hefur þjálfað hjá FH um margra ára skeið, stýrði 3. flokki karla í sumar, auk þess að vera yfirþjálfari yngri flokka Fimleikafélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×