Heilsa

Um gervisykur

Guðni Gunnarsson skrifar
Mynd/Gettyr
Sykurlausir gosdrykkir eru kynntir til sögunnar sem orkulausir drykkir – án hitaeininga. Margar fleiri vörur eru bragðbættar með gervisykri af ýmsu tagi. Það hljómar afskaplega vel í margra eyrum að geta gætt sér á einhverju sem bragðast eins og sykur en er ekki stút- fullt af hitaeiningum.

En málið er ekki svona einfalt. Margt bendir til þess að með neyslu gervisykurs getir þú valdið offitu, þrátt fyrir að hann innihaldi engar hitaeiningar. Þegar þú drekkur sykurlausan gosdrykk sendirðu líkamanum þau skilaboð að hann sé að fá næringu. En hann fær enga næringu, sem aftur eykur hungrið og þörfina á mat og saðningu.

Þar að auki innihalda langflestir sykurlausir gosdrykkir ýmis aukefni sem eru erfið fyrir líkamann – og margir þeirra eru saltaðir með unnu salti (til að ýta undir þorsta svo að við drekkum meira).

Sýrustig líkamans eykst þegar við innbyrðum sykur- lausa gosdrykki – og líkami með hátt sýrustig kallar á mat og næringu.

Í þessu tilfelli gildir (eins og áður) að það skiptir meira máli hvað þú ert ekki að fá en hvað þú ert að fá. Líkaminn heldur að hann sé að fá næringu en grípur í tómt.

Kærleikur,

Guðni


Tengdar fréttir

Nýjustu niðurstöður úr rannsókn á gervisykri

Í liðinni viku birti Nature, alþjóðlegt tímarit um vísindi, niðurstöður úr merkilegri og vandaðri rannsókn um áhrif gervisykurs á brenglað sykurþol eða forstig sykursýki í bæði mönnum og músum.

Hin mörgu andlit sykurs

Sykur er góður, já við vitum það, en hann gefur líka fallega áferð, meiri fyllingu í matinn og sælutilfinningu eftir átið. Er það ekki hin fullkomna samsetning, ekki satt? Jú, því miður er það alveg hárrétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.