Fótbolti

Ronaldo langvinsælastur á Twitter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo er langvinsælasta íþróttastjarnan á samskiptamiðlinum Twitter. Í vikunni komst hann yfir 30 milljónir fylgjenda.

Ronaldo er með meira en tvöfalt fleiri fylgjendur en LeBron James, leikmann Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni. James er með 14,8 milljónir fylgjenda og er næstvinsælasta íþróttahetjan á Twitter.

Næstur á eftir Ronaldo er önnur knattspyrnuhetja, Brasilíumaðurinn Kaka sem er með rúmlega 20 milljónir fylgjenda. James er þriðji en Neymar er skammt undan með 14,5 milljónir.

Næstu fjórir eru allir knattspyrnumenn og með um tíu milljónir fylgjenda á Twitter - Ronaldinho, Wayne Rooney, Andrés Iniesta og Gerard Pique.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×