Innlent

Ísland ekki beðið um að vera á lista bandalagsríkja gegn IS

Atli Ísleifsson skrifar
Í svari ráðuneytisins er IS lýst sem "samtökum sem brjóta alþjóðalög, þ.m.t. mannréttindalög og mannúðarlög.“
Í svari ráðuneytisins er IS lýst sem "samtökum sem brjóta alþjóðalög, þ.m.t. mannréttindalög og mannúðarlög.“ Vísir/E.Ól.
„Sérstakur listi hefur ekki verið kynntur fyrir okkur né við beðin um að vera á lista,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Vísis um hvort Bandaríkin hafi leitað stuðnings til íslenskra stjórnvalda vegna aðgerðanna gegn Íslamska ríkinu (ISIS) í Írak og Sýrlandi.

„Ísland styður að brugðist sé við þeim skelfilegu ódæðisverkum sem ISIS samtökin standa fyrir. Ísland er herlaust ríki og mun ekki leggja af mörkum til hernaðaraðgerða vegna árása á ISIS,“ segir í svarinu.

Í skjali bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 19. september eru fjölmörg ríki listuð sem styðja aðgerðir Bandaríkjastjórnar gegn samtökunum. Er þar meðal annars að finna öll aðildarríki Evrópusambandsins, Noreg, fjöldi arabaríkja og Ástralíu. Ísland er ekki á listanum. Í skjalinu segir að aðgerðin standi enn yfir og búist sé við að stuðningsríkjum komi til með að fjölga.

Í svari ráðuneytisins segir að ljóst sé að alþjóðasamfélagið þurfi að bregðast við uppgangi ISIS hryðjuverkasamtakanna. „Þetta eru samtök sem brjóta alþjóðalög, þ.m.t. mannréttindalög og mannúðarlög.“

Segir að bandarísk stjórnvöld hafi kallað eftir því að ríki heims bindist fastmælum um að berjast gegn uppgangi ISIS samtakanna og annarra ofstækissinnaðra hryðjuverkasamtaka. „Þetta hafa Bandaríkin gert á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafsbandalagsins og í tvíhliða samskiptum, þ.m.t. gagnvart Íslandi.“

Ráðuneytið segir það alfarið vera bandarískra stjórnvalda að ákveða með hvaða hætti þau kynna þetta átak gegn ISIS. „Sérstakur listi hefur ekki verið kynntur fyrir okkur né við beðin um að vera á lista. 

Vert er að benda á að Atlantshafsbandalagið er tilgreint á yfirliti bandaríska utanríkisráðuneytisins og stuðningur okkar hefur þegar komið fram í yfirlýsingu leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Wales.

Við munum leggja áfram af mörkum til að bregðast við þeirri neyð sem hefur skapast með framgangi hryðjuverkasamtaka í Mið-Austurlöndum með framlögum til mannúðaraðstoðar á vegum Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka.“


Tengdar fréttir

Gerðu árásir á ISIS innan landamæra Sýrlands

Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra hófu í nótt loftárásir á bækistöðvar hins íslamska ríkis innan landamæra Sýrlands. Þau ríki sem þátt taka í árásunum ásamt Bandaríkjamönnum eru öll af Arabíuskaganum að því er talsmaður hersins segir en þetta er í fyrsta sinn sem látið er til skarar skríða gegn vígamönnunum innan sýrlensku landamæranna.

Standa saman í baráttunni gegn IS

Öllum ráðum verður beitt gegn samtökunum sem ráða nú yfir stórum landsvæðum í bæði Írak og Sýrlandi.

Cameron vill taka þátt í aðgerðum gegn IS

Búist er við að hann fari fram á kosningu um hvort breski flugherinn taki einnig þátt í árásum á bækistöðvar samtakanna í Sýrlandi og í Írak.

ESB telur að 3000 Evrópubúar berjist með ISIS

Evrópusambandinu telst til að fjöldi evrópskra ríkisborgara sem berjist núna með hinu íslamska ríki í Írak og í Sýrlandi telji nú um þrjúþúsund manns. Þetta kemur fram í Gilles de Kerchove sem fer með hryðjuverkamál innan sambandsins í samtali við BBC.

Vopnaðar breskar þotur í loftinu yfir Írak

Þegar þeim var flogið á loft í morgun voru þær vopnaðar sprengjum og flugskeytum. Flugherinn vill þó ekki gefa upp hvort vopnum hafi verið beitt.

Ekki kunnugt um Íslendinga í röðum IS

Embætti ríkislögreglustjóra er ekki kunnugt um að nokkur Íslendingur hafi gengið til liðs við vígasveitir IS í Sýrlandi og Írak.

Halda áfram árásum á liðsmenn IS

Talsmaður Bandaríkjahers segir árásum á stöðvar IS nærri landamærum Íraks og Sýrlands og í austurhluta Sýrlands hafi verið haldið áfram í dag.

Obama safnar liði gegn vígasveitunum

Bandaríkjaforseti hyggst útskýra hernaðaráform sín gegn Íslamska ríkinu, sem hefur vaðið uppi í Sýrlandi og Írak. Arababandalagið hefur samþykkt hernaðaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu, en lýsir þó ekki stuðningi við áform Bandaríkjanna.

Reynt að koma í veg fyrir að fjölgi í röðum IS

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt bindandi ályktun sem kveður á um að aðildarríki komi í veg fyrir að ríkisborgarar gangi í raðir herskárra íslamista í Sýrlandi og Írak.

Baráttan við ISIS mun vara í nokkur ár

Talsmaður Bandaríkjahers segir ljóst að baráttan við hið Íslamska ríki, samtökin sem nú stjórna stórum svæðum í Írak og í Sýrlandi með harðri hendi, muni taka nokkur ár. Þetta kemur fram í viðtali sem fréttastofa BBC tók við aðmírálinn John Kirby en hann fullyrðir þó að loftárásir Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra á búðir samtakanna í Írak og í Sýrlandi hafi haft mikil áhrif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×