Gunnar: Sindri er ekkert að fara að spila strax Ingvi Þór Sæmundsson í Kaplakrika skrifar 19. september 2014 00:00 Gunnar Magnússon verður án varnarmannsins sterka í nokkurn tíma.
Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV, var að vonum ósáttur eftir að Eyjamanna misstu unninn leik gegn FH niður í jafntefli í kvöld. „Við fórum illa að ráði okkar og ég var ekki nógu ánægður með varnarleikinn í dag. „Sóknarleikurinn var lengst af góður, en það komu nokkrar sóknir í seinni hálfleik þar sem við vorum óagaðir og þeir refsuðu okkur um hæl,“ sagði Gunnar sem sá þó ýmislegt jákvætt við leik sinna manna. „Það er sterkt að koma á erfiðan útivöll og ná í stig. Fyrirfram hefði ég alveg þegið stigið. En miðað við hvernig leikurinn spilaðist vorum við klaufar að klára þetta ekki.“ En hvernig horfir framhaldið við Gunnari? „Við gerum okkur grein fyrir því að þetta verður erfiður vetur og við hlökkum til að takast á við verkefnið. Þetta er maraþon, við þekkjum það, en við þurfum bara að bæta okkur í hverjum leik og verða betri með hverri vikunni sem líður. „Leikurinn var svipaður og ég bjóst við en ég hefði viljað halda þetta út. Við erum fullir sjálfstrauts og vitum að við getum unnið hvaða lið sem er, en að sama skapi getum við tapað fyrir hverjum sem er,“ sagði Gunnar.Sindri Haraldsson, varnarmaðurinn sterki, lék ekki með ÍBV í kvöld vegna meiðsla, en Gunnar segir að hann verði líklega lengi frá. „Sindri er meiddur á kvið og verður frá í einhvern tíma. Þetta lítur ekkert alltof vel út, hann er slæmur og er ekkert að fara að spila strax.“
Olís-deild karla Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Sjá meira