Íslenski boltinn

Leikskólakennarinn raðar inn mörkunum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir er markahæsti leikmaðurinn í Pepsi-deild kvenna í fótbolta, en hún er búin að skora 20 mörk fyrir topplið Stjörnunnar.

Valtýr Björn Valtýsson fjallaði um þessa miklu markadrottningu í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld, en hann heimsótti hana á leikskólann Aðalþing þar sem hún vinnur.

„Þetta er svolítið minn staður. Ég er búin að starfa á leikskóla mjög lengi og vera hérna í rúmlega tvö ár,“ sagði Harpa, en starfið þar passar vel með boltanum.

„Þetta fer vel saman að því leyti að ég er búin klukkan fjögur og þarf sjaldan að hafa áhyggjur af því að vera taka vinnuna með mér heim. En auðvitað tekur þetta smá orku frá manni.“

Harpa er markahæsta mamman í Pepsi-deildinni með 71 mark. „Það er alltaf gott að næla sér í titla hvaðan sem þeir koma,“ segir hún og hlær.

Jóhannes Karl, sambýlismaður Hörpu, þjálfaði hana á árum áður og segist eiga fullt í henni.

„Allavega 90 prósent,“ segir hann léttur. „Ég bæði þjálfaði hana lengi og svo hefur maður stutt við hana áfram þó það sé á annan hátt.“

En hvað gerir hana svona góða? „Hún hefur ákveðinn þroska og verið lengi í þessu. Hún hefur alltaf tekið rétt skref og býr yfir líkamlegum styrk sem hjálpar öllum leikmönnum.“

Aðspurð hvort hún vilji fara aftur út í atvinnumennsku segir Harpa: „Ekki á þessum tímapunkti.“

Innslagið allt má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×