Styrktaræfingar fyrir fætur og axlir teknar fyrir 11. ágúst 2014 13:30
Í þessum sjötta þætti af EA Fitness fer Elma í gegnum seinni fótaæfinguna ásamt Team EA Fitness meðlimunum Dagnýju og Sofiu. Anton kíkir á Magnús Samúelsson og tekur spjall og æfingu með þessum gríðarlega öfluga vaxtarræktarkappa. Einnig er Einarshornið alltaf á sýnum stað. Í EA Fitness þáttaröðinni fáum við að fylgja þjálfurunum Elmu og Antoni eftir en þau fjalla um líkamsrækt, næringu og heilbrigðan lífsstíl. Elma Grettisdóttir er með menntun frá World Class-skólanum og í Stott Pilates. Hún hefur unnið sem einkaþjálfari í mörg ár og er þjálfunin ekki bara vinna fyrir henni heldur einnig áhugamál. Hún býður uppá einkaþjálfun í World Class sem og fjarþjálfun. Anton Rúnarsson hefur unnið sem einka- og fjarþjálfari í meira en tíu ár. „Að aðstoða fólk við að koma sér í form og læra að halda sér í formi er það sem ég geri, megrun er ekki í mínum orðaforða heldur lífsstíll. Að endurstilla hugarfarið til að lifa heilbrigðum lífsstíl,“ segir Anton. Hann er menntaður einkaþjálfari frá World Class-skólanum. Hér að neðan má sjá sjötta þáttinn.
Mest lesið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Lífið Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Tónlist Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Menning Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Lífið Gáfu dótturinni þrjú nöfn Lífið Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Lífið Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Lífið Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Lífið