Erlent

Stærsta stífla Írak í höndum vígamanna

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins (áður ISIS) hafa hertekið stærstu stíflu Írak. Eftir viku af bardögum á milli vígamanna og hermanna Kúrda hefur íslamska ríkið nú stjórn yfir miklum birgðum af vatni sem og stjórn yfir rafmagni á stóru svæði.

Þá hafa þeir einnig unnið aðgang að á sem rennu í gegnum Bagdad höfuðborg Írak.

Í tilkynningu frá samtökunum segjast þeir hafa tekið stífluna og íbúar á svæðinu hafa staðfest það við AP fréttaveituna. Samtökin segjast ætla að halda áfram að sækja í allar áttir og þeir ætli að stofna íslamskt ríki.

Samtökin segjast hafa tekið stjórn á 17 borgum, bæjum og ýmsum öðrum mikilvægum stöðum eins og stíflunni, á síðustu fimm dögum.

Hér að neðan má sjá kort yfir stöðu mála í Írak.

Vísir/Graphic News
...


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×