Íslenski boltinn

83 milljónir í kassann hjá Stjörnunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ingvar Jónsson fór á kostum í marki Stjörnunnar í kvöld.
Ingvar Jónsson fór á kostum í marki Stjörnunnar í kvöld. Vísir/AFP
Karlalið Stjörnunnar í Garðabæ náði sögulegum árangri í kvöld er liðið sló út pólska félagið Lech Poznan í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Liðið gerði markalaust jafntefli í Póllandi eftir 1-0 sigur í fyrri leiknum á heimavelli. Um stórbrotinn árangur er að ræða enda misstu íslenskir sparkspekingar sig á Twitter í leikslok. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari liðsins, var gráti næst er Vísir heyrði í honum hljóðið að leik loknum.

Með sigrinum vann Stjarnan sér inn 150 þúsund evrur til viðbótar við þær 390 þúsund evrur sem liðið hafði þegar unnið sér inn. Fyrst fékk liðið 120 þúsund evrur fyrir að tryggja sér sæti í forkeppni Evrópudeildar. Þá fékk liðið 130 þúsund evrur fyrir að leggja Bangor frá Wales og tryggja sér sæti í 2. umferð. Við bættust 140 þúsund evrur með dramatískum sigri á skoska liðinu Motherwell í þriðju umferð.

Alls hefur Stjarnan því unnið sér inn 540 þúsund evrur eða jafnvirði 83 milljóna íslenskra króna.

Ingvar varði allt sem á mark Stjörnunar kom í 180 mínútur gegn pólska stórliðinu.Vísir/AFP
Árangur Stjörnunnar er svo sannarlega sögulegur. Félagið spilar í Evrópukeppni í karlaflokki í fyrsta skipti í ár. Liðið hefur ekki enn tapað í sex leikjum sínum. Liðið vann 4-0 sigur í báðum leikjunum gegn Bangor, samanlagt 5-4 gegn Motherwell og nú 1-0 gegn Lech Poznan. Samanlögð markatala er 14-4.

Ljóst er að andstæðingur Stjörnunnar í fjórðu og lokaumferð forkeppni Evrópudeildarinnar, umspilinu, verður erfiður. Sigur þar myndi tryggja liðinu sæti í riðlakeppni Evrópudeildar og um leið 1,3 milljónir evra eða um 200 milljónir íslenskra króna.

Fjölmargir spennandi andstæðingar verða í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð. Má þar nefna Inter frá Ítalíu, Tottenham frá England, PSV Eindhoven frá Hollandi og Villarreal frá Spáni. Stjarnan er lægst skrifaða liðið samkvæmt styrkleikaútreikningum UEFA enda að spila í fyrsta skipti í Evrópu.

Óvíst er hvort Stjarnan fær að spila heimaleik sinn í umspilinu í Garðabænum. Samsung-völlurinn er gervigrasvöllur auk þess sem mögulegt er að andstæðingur Stjörnunnar gæti gert athugasemd við stærð stúku eða aðrar vallaraðstæður.

Í riðlakeppni Evrópudeildar spila fjögur lið í riðli, tvo leiki, heima og að heiman. Því myndu bíða Stjörnunnar sex leikir til viðbótar og mögulegar auknar tekjur af sjónvarpsrétti.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×