Aldís Kara með þrennu á móti uppeldisfélaginu sínu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2014 21:12 Aldís Kara Lúðvíksdóttir. Vísir/Andri Marinó
Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Breiðablik í kvöld þegar Blikakonur unnu 6-1 útisigur á FH í lokaleik 12. umferðar Pepsi-deildar kvenna. Breiðablik styrkti þar með stöðu sína í öðru sæti deildarinnar en Blikar eru með fjögurra stiga forskot á lið Vals og Þór/KA sem koma í næstu sætum á eftir. Blikakonur náðu einnig að minnka forskot toppliðs Stjörnunnar í átta stig. Telma Hjaltalín Þrastardóttir kom Breiðabliki í 1-0 strax á 11. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Guðrún Arnardóttir bætti við öðru marki á 52. mínútu en Elva Björk Ástþórsdóttir minnkaði muninn tveimur mínútum síðar. Aldís Kara Lúðvíksdóttir, sem var þarna að mæta sínu uppeldisfélagi, skoraði þrisvar á síðustu 35 mínútum leiksins, fyrsta mark hennar kom á 55. mínútu, það annað á 71. mínútu og hún innsiglaði síðan þrennuna á 87. mínútu. Aldís Kara, sem er tvítug, hefur þar með skorað fimm mörk í tveimur leikjum á móti sínu gamla liði í sumar því hún skoraði tvö mörk í 13-0 sigri í fyrri leiknum. Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði fimmta markið á 77. mínútu og Blikakonur skoruðu því 19 mörk í tveimur leikjum við FH í Pepsi-deild kvenna í sumar. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Benedikt hættur með kvennalandsliðið Körfubolti Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Fótbolti Gunnar kveður og Stefán tekur við Handbolti Sjáðu vörslurnar hjá Alisson: „Fáir sem stugga við honum“ Fótbolti Bergrós efst Íslendinga eftir fyrstu viku CrossFit Open Sport Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Fótbolti Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Handbolti Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Fótbolti Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Fótbolti Einstakt mál í Frakklandi: Níu mánaða bann fyrir að ógna dómara Fótbolti Fleiri fréttir Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Sjá meira