Íslenski boltinn

Hafrún skaut Þór/KA í annað sætið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA. vísir/valli
Þór/KA vann FH, 1-0, í fyrsta leik níundu umferðar Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Eina mark leiksins skoraði Hafrún Olgeirsdóttir á 33. mínútu leiksins, en með sigrinum komst Þór/KA upp í annað sæti deildarinnar.

Norðankonur eru með 17 stig eftir níu umferðir, fjórum stigum á eftir Íslandsmeisturum Stjörnunnar og stigi á undan Breiðabliki sem bæði eiga leik til góða.

FH er í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar með átta stig þegar mótið er hálfnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×