Íslenski boltinn

Þórður tekur tímabundið við ÍA

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Anton
Þórður Þórðarson, fyrrverandi þjálfari meistaraflokks karla hjá Knattspyrnufélagi ÍA tekur tímabundið við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Þetta staðfesti ÍA í yfirlýsingu sem kom frá félaginu í dag.

Ákvörðunin er tekin að beiðni Magneu Guðlaugsdóttir, þjálfara meistaraflokks kvenna hjá ÍA. Ástæðan á bak við ákvörðunina er veikindi barns Magneu.

Ekki er víst hversu lengi Magnea verður í leyfi en ákvörðun félagsins að leitast eftir þjónustu Þórðar var tekin í samráði við Magneu og Margréti Ákadóttir, aðstoðarþjálfara sem hefur stýrt liðinu í fjarveru Magneu í síðustu tveimur leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×