Fótbolti

Mascherano áfram hjá Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mascherano verður áfram í herbúðum Barcelona.
Mascherano verður áfram í herbúðum Barcelona. Vísir/Getty
Javier Mascherano hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Barcelona sem gildir til ársins 2018.

Mascherano, sem fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, gekk í raðir Barcelona frá Liverpool árið 2010. Hann hefur leikið 184 leiki fyrir Katalóníuliðið á undanförnum fjórum árum, flesta í stöðu miðvarðar.

Mascherano, sem hóf ferilinn hjá River Plate í heimalandinu, verður í eldlínunni með Argentínu á HM í Brasilíu sem hefst á fimmtudaginn.

Argentína leikur í F-riðli með Íran, Bosníu og Nígeríu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×