Íslenski boltinn

Harpa með tvennu gegn ÍBV

Harpa Þorsteinsdóttir.
Harpa Þorsteinsdóttir.
Íslandsmeistarar Stjörnunnar komust á sigurbraut í kvöld er þær sóttu Eyjastúlkur heim.

Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk í 0-4 sigri Stjörnunnar. Glódís Perla Viggósdóttir og Sigrún Ella Einarsdóttir komust einnig á blað.

Stjarnan tapaði í fyrstu umferð, 1-0, gegn Blikum á meðan ÍBV sótti þrjú stig á Selfoss með 1-2 sigri.

Önnur umferðin í Pepsi-deild kvenna klárast í kvöld en þrír leikir eru nú í gangi.

Upplýsingar um markaskorara: urslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×