Fótbolti

Þrír bræður með yfir 100 leiki fyrir sama félagið

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Þórir Bergsson afhendir Birgi skjöldinn og blómin
Þórir Bergsson afhendir Birgi skjöldinn og blómin mynd/hk
Birgir Magnússon var á dögunum heiðraður fyrir að hafa leikið 100 leiki fyrir meistaraflokk HK í fótbolta. Hann jafnaði þar afrek tveggja bræðra sinna.

Birgir var heiðraður fyrir fyrsta heimaleik HK í 1. deildinni gegn Haukum. Hann varð í vetur fimmtándi leikmaður HK til að ná þessum áfanga en þeirra á meðal eru Davíð og Hörður, bræður Birgis.

Það er einstakt afrek að þrír bræður nái að leika 100 leiki fyrir meistaraflokks sama félagsins.

Birgir fékk áletraðan skjöld og blómvönd frá HK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×