Fótbolti

Ronaldo tók fram úr Messi| Nálgast Raul

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ronaldo sáttur við sig og markið sitt
Ronaldo sáttur við sig og markið sitt vísir/afp
Ronaldo skoraði 68. mark sitt í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar hann skoraði fjórða mark Real Madrid í sigrinum á Atletico Madrid.

Ronaldo er þar með orðinn næst markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar frá uppafi, með marki meira en Messi og þremur mörkum á eftir Raul sem enn er markahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi.

Raul skoraði 71 mark í 144 leikjum en Ronaldo er búinn að skora 68 mörk í 107 leikjum. Messi hefur aðeins þurft 86 leiki til að skora 67 mörkin sín og það verður að teljast líklegt að bæði Messi og Ronaldo taki fram úr Raul á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×