Fótbolti

Simeone: Mistök að byrja með Costa inn á

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Diego Simeone og Raphael Varane lenti saman undir lok úrslitaleiks Meistaradeildarinnar í gær.
Diego Simeone og Raphael Varane lenti saman undir lok úrslitaleiks Meistaradeildarinnar í gær. Vísir/Getty
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, viðurkennir að það hafi verið mistök að láta framherjann Diego Costa byrja úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu í gær.

"Það var á mína ábyrgð að Diego skyldi hafa byrjað leikinn og það voru mistök hjá mér," sagði Simeone eftir leikinn, en Costa þurfti að fara af velli á 9. mínútu vegna meiðsla sem hann hefur glímt við að undanförnu. Hann fór einnig meiddur út af í leiknum gegn Barcelona um síðustu helgi þar sem Atletico tryggði sér Spánarmeistaratitilinn.

Þrátt fyrir tapið gegn nágrönnunum í Real Madrid var Simeone stoltur af sínum mönnum.

"Þegar liðið gefur allt sem það á, þá er ekki hægt að fara fram á meira. Núna verðum við að hvílast og undirbúa okkur fyrir næsta tímabil.

"Þetta mun styrkja okkur og gefa okkur möguleika á að bæta leik okkar. Nú vita allir að Atletico er alvöru lið," sagði argentínski þjálfarinn ennfremur.

Varðandi atvikið undir lok leiksins þegar Simeone reiddist Raphael Varane, leikmanni Real Madrid, og hljóp inn á völlinn, þá sagði hann að franski varnarmaðurinn hefði sparkað bolta í áttina að varamannabekk Atletico.

"Hann sparkaði boltanum í áttina að mér og það fauk í mig. Það var ástæðan, hann er ungur. Þetta voru ekki góð viðbrögð hjá honum og líklega ekki hjá mér heldur," sagði Simeone að endingu.


Tengdar fréttir

Ronaldo í metabækurnar

Portúgalinn Cristiano Ronaldo skoraði fjórða og síðasta mark Real Madrid úr vítaspyrnu þegar liðið lagði nágranna sína í Atletico Madrid, 4-1, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær.

Sögulegur sigur Ancelottis

Carlo Ancelotti hefur unnið jafn marga Meistaradeildartitla og Bob Paisley gerði á sínum tíma með Liverpool. Ítalinn komst einnig í hóp þeirra þjálfara sem hafa stýrt tveimur liðum til sigurs í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×