Segir samningamennina hafa verið vonda Stefán Árni Pálsson og Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 14. maí 2014 15:08 Skarphéðin Berg Steinarsson, Þorsteinn Már, Lárus Welding, Þorsteinn M. Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson.
Fyrrverandi stjórnarmenn Glitnis báru í dag vitni símleiðis í Aurum-málinu svokallaða. Allir voru þeir sammála um að þeir hefði ekki orðið varir við að Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis sem ákærður er í málinu, hefði verið beittur þrýstingur af stærstu hluthöfum bankans. Einnig voru vitnin sammála um að bankinn hafi ekki tekið sérstakt tillit til hagsmuna stærstu hluthafa. Í málinu eru þeir Lárus Welding, Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestir, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, sem báðir voru starfsmenn Glitnis, ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd.Skarphéðin Berg Steinarsson, Þorsteinn Már Baldvinsson, Þorsteinn M. Jónsson, Pétur Guðmundsson og Einar Sveinsson gáfu meðal annarra skýrslu í dag og voru þeir allir stjórnarmenn Glitnis á einhverjum tímapunkti á árunum 2007 til 2008. Þeir fengu allir mjög svipaðar spurningar og svöruðu þeim á svipaðan hátt. Fram kom í vitnisburði Péturs Guðmundssonar, sem var að sögn óháður í stjórn Glitnis, að hann hafi látið undan þrýstingi þegar hann samþykkti starfslokasamning Bjarna Ármannssonar fyrrverandi forstjóra Glitnis og ráðningarsamning Lárusar. „Það var eftir því leitað að ég tæki sæti í stjórn sem óháður stjórnarmaður,“ sagði Pétur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag: „Hannes Smárason talaði við mig og fékk mig í verkefnið en það var beinlínis tekið fram að ef það kæmi mótframboð þá yrði ég ekki studdur af neinum hluthöfum.“ Hann sagði að sér hefði fundist samningarnir við forstjórana tvo háir: „Á mínum fyrsta stjórnarfundi voru lagðir fram samningar við Bjarna Ármannsson og Lárus Welding og mér þótti þeir nokkuð háir. Ég ákvað að gera athugasemd við þá en umræðan á stjórnarfundunum var sú að þeir yrðu samþykktir. Ég hugsaði með mér að sitja hjá en lét undan því að taka afstöðu. Það voru vondir samningamenn sem gerðu þessa samninga.“ Einar Sveinsson var spurður hvort hann hefði orðið var við breyttar áherslur í rekstri bankans við innkomu nýrra eigenda og svaraði hann því játandi: „Mér sýndist útlán bankans aukast umtalsvert.“ Einar var stjórnarformaður bankans til 30. apríl 2007.
Aurum Holding málið Tengdar fréttir „Það var sætari stelpa á ballinu“ Pálmi Haraldsson, fyrrum eigandi FS38 og framkvæmdastjóri Fons, bar vitni í Aurum-Holding málinu í héraði í dag. 14. maí 2014 12:58 Bjarni Ármannsson þarf að bera vitni Sjö fyrrverandi sjórnendur Glitnis þurfa að bera vitni í Aurum Holding-málinu auk tveggja forsvarsmanna skartgripafyrirtækis í Duabi. 4. maí 2014 15:17 Báru vitni frá Dubai Báðir sögðu að verðið á Aurum, 100 milljónir sterlingspunda hefði komið frá félaginu sjálfu. 14. maí 2014 12:03 Birkir Jón vill frístundakort fyrir eldri borgara Birkir Jón Jónsson er oddviti til að veita dætrum sínum betri aðstæður. 9. maí 2014 09:09 Framhald aðalmeðferðar í Aurum-málinu Framhald aðalmeðferðar í Aurum Holding-málinu svokallaða heldur áfram í dag. 14. maí 2014 09:46 Mest lesið Arion banki hækkar vexti hressilega Neytendur Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Neytendur Þungur róður hjá Samstöðinni Viðskipti innlent Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Atvinnulíf Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Neytendur Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Viðskipti erlent Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Viðskipti erlent Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Viðskipti erlent Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Viðskipti erlent Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Þungur róður hjá Samstöðinni Ráðin framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu Flugrisar funda í Hörpu vegna seinkana og aflýsinga Farþegafjöldinn í ágúst svipaður og á síðasta ári Kveður ostasnakkið fyrir Wolt Félagar opna Fiskbúðina við Sundlaugaveg á ný Eyrún og Þorgils til SI Play bætir við áfangastað í Króatíu Stefnt á 41 milljarðs króna hallarekstur ríkissjóðs Matorka fékk samþykkta greiðslustöðvun Hlutur Skeljar stækkar eftir áreiðanleikakönnun Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni Mannlíf sektað vegna tóbaksauglýsinga Bónus og Jysk ríða á vaðið í Korputúni Sætanýtingin aldrei verið betri Gerður í Blush orðlaus yfir auglýsingum Play Fimm ára samningar heyra sögunni til hjá Ölmu Samið um kaup bankans á Arngrimsson Advisors Eigandi BL tekur við forstjórastólnum á nýjan leik Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital Pipar/TBWA eflir samskiptateymið Farþegum fjölgaði um tíu prósent í ágúst Sumarflug á fimmtudögum til Tallinn Hagnaður í fyrsta sinn í fimm ár Tómas hættir hjá Símanum og Höddi tekur við enska boltanum Tryggja selt til Þýskalands Allir sammála um óbreytta vexti Lúx verður að Útópíu Hrepptu gullið annað árið í röð í Buffalo Sjá meira
„Það var sætari stelpa á ballinu“ Pálmi Haraldsson, fyrrum eigandi FS38 og framkvæmdastjóri Fons, bar vitni í Aurum-Holding málinu í héraði í dag. 14. maí 2014 12:58
Bjarni Ármannsson þarf að bera vitni Sjö fyrrverandi sjórnendur Glitnis þurfa að bera vitni í Aurum Holding-málinu auk tveggja forsvarsmanna skartgripafyrirtækis í Duabi. 4. maí 2014 15:17
Báru vitni frá Dubai Báðir sögðu að verðið á Aurum, 100 milljónir sterlingspunda hefði komið frá félaginu sjálfu. 14. maí 2014 12:03
Birkir Jón vill frístundakort fyrir eldri borgara Birkir Jón Jónsson er oddviti til að veita dætrum sínum betri aðstæður. 9. maí 2014 09:09
Framhald aðalmeðferðar í Aurum-málinu Framhald aðalmeðferðar í Aurum Holding-málinu svokallaða heldur áfram í dag. 14. maí 2014 09:46